Stærsta verkfallsbylgja í áratugi skekur Bandaríkin

Meðan stöðug fjöl­mið­la­upp­hlaup og enda­laus, og oft nán­ast óskilj­an­leg hneyksl­is­mál Banda­ríkja­fos­eta, hafa gleypt athygli fjöl­miðla hefur ein stærsta frétt síð­asta árs í Banda­ríkj­unum að mestu farið fram­hjá almenn­ingi: Stærsta bylgja verk­falla og vinnu­stöðv­ana síð­ustu hálfrar aldar skekur nú Banda­ríkin.

Stærsta verkfallsbylgja í áratugi skekur Bandaríkin
Kennari í verk­falli Chris Baehrend, for­seti kenn­ara­sam­bands í Chicago, mót­mælir í febr­úar síð­ast­liðnum í einu fjöl­margra kenn­ara­verk­falla í Banda­ríkj­unum síð­ast­liðið ár. Mynd: Wikimedia Commons

Í fyrrra tóku 485.200 manns þátt í verk­föllum og vinnu­stöðv­unum í Banda­ríkj­unum, fleiri en nokkru sinni síðan 1986. Þessi verk­falls­bylgja er fyrst og fremst knúin áfram af vax­andi rót­tækni kenn­ara. 370.000 kenn­arar lögðu niður störf árið 2018. Og það er ekk­ert lát á aðgerð­unum. Þvert á móti virð­ast verk­falls­að­gerðir kenn­ara vera að breið­ast út.

Verk­föllin eru merki­leg fyrir margra hluta sakir, ekki síst þá að verk­föll eru fátíð í Banda­ríkj­unum þar sem verka­lýðs- og stétt­ar­fé­lög eru mjög veik­burða. Aðeins rétt 10,7 pró­sent banda­rísks launa­fólks er í stétt­ar­fé­lagi. Verkföll margra stétta, til dæmis opin­berra starfs­manna eins og kenn­ara, eru bein­línis ólög­leg í mörgum ríkjum Banda­ríkj­anna. Árið 2017 tóku því ekki nema 25.000 manns þátt í verk­föllum.

Verkföll síð­asta árs eru því mjög óvenju­leg, og fara þarf allt aftur til alda­mót­anna 1900 og fyrstu ára­tuga 20. aldar til að finna verk­föll af sam­bæri­legri stærð­argráðu.

Mótmælt í …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár