Jón Baldvin svarar ekki fyrir meinta áreitni í Hagaskóla

Jón Baldvin Hanni­bals­son svarar ekki fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar um hvernig hann skýri sögur tveggja 13 og 14 ára stúlkna sem hann kenndi í Haga­skóla. Stunda­skrá stað­festir kennslu hans við bekk­inn, sem hann hafði áður sagt að engin gögn væru til um.

Jón Baldvin svarar ekki fyrir meinta áreitni í Hagaskóla
Jón Baldvin Hanni­bals­son Stunda­tafla sannar að Jón Baldvin

Jón Baldvin Hanni­bals­son, sem tugir kvenna hafa sakað um kyn­ferð­is­lega áreitni á rúm­lega 50 ára tíma­bili, seg­ist hafa svarað öllum þeim konum sem komið hafi fram undir nafni. Hann hefur hins vegar ekki svarað ítrek­uðum fyr­ir­spurnum Stund­ar­innar um meinta áreitni sem 13 og 14 ára nem­endur sem hann kenndi í Haga­skóla árið 1967 lýstu undir nafni.

Í grein í Morg­un­blað­inu í gær skrifar ráð­herr­ann fyrr­ver­andi að hann hafi eytt kvöld­stund í lestur þeirra 23 frá­sagna sem konur hafa birt og lýsa áreitni hans. Lest­ur­inn hafi verið þarfur vegna vænt­an­legra mála­ferla hans.

„Annars vegar voru hinar hug­rökku, sem sögðu til nafns,“ skrifar Jón Baldvin. „Þeim hef ég þegar svarað. Hinar voru sýnu fleiri sem földu sig bak við nafn­leynd.“

Ósatt er að Jón Baldvin hafi þegar svarað kon­unum sem fram komu undir nafni. Í greina­skrifum sínum og sjón­varps­við­tölum hefur hann ekki brugð­ist við ásök­unum Mar­grétar Schram, mág­konu Jóns Baldvins. Margrét sagði í við­tali við Stundina að hann hefði komið nak­inn upp í rúm til sín þegar hún var á mennta­skóla­aldri í heim­sókn hjá hjón­unum í Edinborg.

Þá sagð­ist hann ekki mundu svara Matt­hildi Krist­manns­dóttur og Maríu Alex­and­ers­dóttur, þar sem engin gögn sýndu að hann hefði kennt þeim í Haga­skóla árið 1967 þegar kyn­ferð­is­leg áreitni hans gagn­vart þeim á tán­ings­aldri mun hafa átt sér stað.

„Engin gögn fyr­ir­finn­ast um að ég hafi kennt umræddum bekk,“ skrif­aði Jón Baldvin í grein í Frétta­blað­inu. „Meðan svo er, hef ég ekki meira um það að segja.“

Stundatöflur sanna kennslu Jóns Baldvins við bekkinn

Stundin hefur sýnt fram á að Jón Baldvin var vissu­lega kenn­ari þeirra í íslensku það skóla­árið og birt gögn úr Borg­ar­skjala­safni því til stað­fest­ingar. Stunda­töflur frá Skóla­skrif­stofu, sem Jón Baldvin fékk afhentar frá safn­inu með tölvu­pósti á sama tíma og Stundin, stað­festa hins vegar kennslu hans í íslensku við bekk­inn 2.X vet­ur­inn 1967 til 1968. Kenndi hann bekknum sex sinnum í viku. Bekkj­ar­listi, sem Borg­ar­skjala­safn afhenti einnig, stað­festir að Matt­hildur og María voru báðar í bekknum, auk tveggja ann­arra kvenna sem Stundin hefur rætt við til stað­fest­ingar á frá­sögnum þeirra.

Matt­hildur sagði í við­tali við Stundina að hún hefði farið að kvíða fyrir tímunum hjá Jóni Baldvini, þar sem hann hafi alltaf látið hana sitja eftir eina. Loks hafi Jón Baldvin farið að færa sig upp á skaftið. „Hann hélt áfram að strjúka mér og fór að troða sér aftan á stól­inn hjá mér,“ sagði hún. „Þetta var svona gam­all skóla­stóll með algjör­lega beinu baki og beinu sæti. Honum tókst að troða sér fyrir aftan mig á milli mín og stól­baks­ins. Ég sat alveg á nipp­inu á stólnum. Hann var mjög grannur á þessum árum og ég líka og þetta tókst honum að gera. Hann byrj­aði að káfa á mér allri og sleikti á mér háls­inn og eyrað og kinn­ina. Ég var algjör­lega frosin. Ég gat ekki staðið upp. Ég gat ekki sagt neitt. Ég bara sat. Ég man eftir hvað ég skamm­að­ist mín fyrir hvað væri að gerast.“

María Alex­and­ers­dóttir, bekkj­ar­systir Matt­hildar, lýsti einnig því sem hún upp­lifði sem áreiti Jóns Baldvins í Haga­skóla. Hann hafi strokið henni óþægi­lega og grúft sig upp við and­lit hennar, sem henni hafi þótt óþægi­legt. Framkoma hans hafi bundið enda á skóla­göngu hennar. „Ég hef fengið við­bjóð, algjöran við­bjóð, að hann skuli hafa kom­ist svona langt,“ sagði María. „Maður skilur þetta ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár