Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Starfsmanni vikið úr starfi eftir að hann leitaði til stéttarfélagsins

Fyrr­ver­andi starfs­fólk veit­inga­húss og hót­els á Snæ­fells­nesi kvartar undan kjara­brotum rekstr­ar­stjóra sem borg­aði þeim ekki fyrir yfir­vinnu. Tveir fyrr­ver­andi starfs­menn segja rekstr­ar­stjór­ann hafa hótað því að kona hans myndi keyra yfir þá. Rekstr­ar­stjór­inn segir að málið sé róg­burður en játar að hann haldi eftir síð­asta launa­seðli ann­ars starfs­manns­ins.

Króat­ískur mat­reiðslu­maður sem vann 425 klukku­stundir á veit­inga­stað í Snæ­fellsbæ segir að eig­andi stað­ar­ins hafi ekki borgað sér neina yfir­vinnu. Eftir að hann ræddi við stétt­ar­fé­lagið sitt, sem stað­festi grun hans, rak eig­and­inn hann úr vinnu.

Maðurinn hóf að mót­mæla dag­lega fyrir utan veit­inga­stað­inn og íslensk kona sem hafði unnið hjá sama eig­anda gekk til liðs við hann. Sjálf hafði hún þurft að sækja van­goldin laun sín í atvinnu­leys­is­trygg­ing­ar­sjóð þegar fyr­ir­tæki eig­and­ans fór á haus­inn.

Eigandi veit­inga­stað­ar­ins segir málið vera upp­spuna og tekur skýrt fram að ef hann hafi ekki greitt rétt laun þá hafi hann ekki vitað betur, en stað­festir að hann hafi haldið aftur síð­asta launa­seðli starfs­manns­ins.

Leiga dregin af launum án leigusamnings

Hinn 36 ára Robert Zubcic flutti til Íslands í ágúst síð­ast­liðnum eftir að honum bauðst starf á veit­inga­staðnum Hrauni í Ólafsvík sem kokkur. Robert seg­ist hafa lokið þriggja ára kokka­skóla í Króatíu og að hann hafi starfað sem kokkur í Þýska­landi og liðið vel þar, en að hann hafi heill­ast af Íslandi. „Ég hafði heyrt að Ísland væri mjög fram­sækið og virti mann­rétt­indi, og að hér væri hægt að fá góð laun,“ segir Robert. „Ég ræddi við eig­and­ann í sím­ann og hann lof­aði að ef ég myndi koma fengi ég um 3.000 evrur á mán­uði [um 412.000 kr.]. En þegar ég kom hingað byrj­aði martröðin.“

„En þegar ég kom hingað þá byrj­aði martröðin.“

Robert segir að Jón Kristinn Ásmunds­son, sem er fram­kvæmd­ar­stjóri og eig­andi veit­ing­ar­stað­ar­ins til hálfs á móti konu sinni, hafi ráðskast með sig og komið illa fram við sig og aðra. „Hann lét alltaf eins og hann væri mik­il­menni, eins og að hann gæti ekki gert nein mis­tök.“ Roberti var útvegað her­bergi í íbúð sem hann segir að hafi verið mjög skítug, illa lykt­andi og að það hafi ítrekað ekki verið renn­andi vatn í íbúð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár