Eistneskt dagblað fjallar um mál Jóns Baldvins

Urmas Reinsalu, dóms­mála­ráð­herra Eist­lands, seg­ist ekki muna eftir því að hafa heyrt af sam­neyti við vænd­is­konur eftir fund Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar með Lennart Meri, fyrr­ver­andi for­seta Eist­lands.

Eistneskt dagblað fjallar um mál Jóns Baldvins
Mikils met­inn í Eist­landi Jón Baldvin nýtur virð­ingar í Eist­landi í ljósi þess að Ísland við­ur­kenndi sjálf­stæði lands­ins fyrst ríkja í utan­rík­is­ráð­herra­tíð hans. Mynd: pressphotos.biz

Eitt stærsta dag­blað Eist­lands, Eesti Päevaleht, birti frétta­skýr­ingu í gær þar sem fjallað er um meinta kyn­ferð­is­lega áreitni Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar gagn­vart fjölda íslenskra kvenna. Málið hefur frétta­gildi í Eist­landi í ljósi þeirrar virð­ingar sem Jón Baldvin nýtur þar, enda var það í utan­rík­is­ráð­herra­tíð Jóns Baldvins sem Ísland, fyrst ríkja, við­ur­kenndi Eistland sem sjálf­stætt ríki.

Jón Baldvin og for­set­innJón Baldvin hlaut heið­ur­svið­ur­kenn­ingu frá Lennart Meri árið 1996.

„Utan­rík­is­ráð­herr­ann sem var fyrstur til að við­ur­kenna Eistland flæktur í MeToo-hneyksli á Íslandi.“ Þannig hljóðar fyr­ir­sögnin í frétt Eesti Päevaleht. Vísað er til við­tal­anna sem birt­ust í síð­asta tölu­blaði Stund­ar­innar við fjórar konur sem lýstu kyn­ferð­is­legri áreitni af hálfu Jóns Baldvins og bent á að Jón Baldvin hafi verið sæmdur heið­urs­merki af Lennart Meri, þáver­andi for­seta Eist­lands, árið 1996. Meint kyn­ferð­is­áreitni Jóns Baldvins spanni marga ára­tugi aftur í tím­ann, en nýjasta atvikið muni hafa átt sér stað síð­asta sumar. Rætt er við Þóru Tóm­as­dóttur blaða­konu sem fjall­aði um kyn­ferð­is­legar bréfa­send­ingar Jóns Baldvins til Guðrúnar Harð­ar­dóttur, syst­ur­dóttur eig­in­konu hans sem þá var á ung­lings­aldri, í Nýju lífi árið 2012. „Hann hafði aug­ljós­lega áhuga á ung­lings­stúlkum á kyn­þroska­skeiði,“ er haft eftir Þóru. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár