Millitekjufólk lendir í sama hópi og milljarðamæringar á tekjuvef ríkisstjórnarinnar

Tekju­hæstu 10 pró­sent hjóna á miðjum aldri hafa aukið ráð­stöf­un­ar­tekjur sínar tvö­falt meira en hjón í öllum öðrum tekju­hópum í upp­sveiflu und­an­far­inna ára. Þetta sýnir Tekju­sagan.is, gagna­grunnur rík­is­stjórn­ar­innar um lífs­kjara­þróun. Vefurinn er þó vart not­hæfur til sam­an­burðar á kjörum milli­tekju­fólks og hátekju­fólks, enda er hæsta tekju­tí­undin afar ósam­stæður hópur.

Millitekjufólk lendir í sama hópi og milljarðamæringar á tekjuvef ríkisstjórnarinnar
Sterkur grund­völlur „Ég tel að með Tekju­sög­unni séum við komin með styrkan grund­völl undir umræður um kjara­mál,“ segir Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Tekju­hæstu 10 pró­sent hjóna á miðjum aldri (50 til 65 ára) hafa aukið ráð­stöf­un­ar­tekjur sínar að með­al­tali rúm­lega tvö­falt meira en hjón í öllum öðrum tekju­hópum á tíma­bil­inu 2012 til 2017. Með­al­ráð­stöf­un­ar­tekjur hjóna á þessum aldri, með og án barna, juk­ust um 5 til 6 pró­sent á ári yfir tíma­bilið en hjá tekju­hæsta hópnum var aukn­ingin í kringum 10 pró­sent. 

Þetta má sjá á Tekju­sög­unni.is, vef sem rík­is­stjórn Íslands setti í loftið um miðjan jan­úar þar sem hægt er að bera saman lífs­kjara­þróun hópa með ein­földum hætti. 

Á vefnum er ekki boðið upp á sam­an­burð á skatt­byrði en með því að slá upp­gefnum tölum inn í Excel má greina örlitla lækkun með­al­skatt­byrði (tveggja pró­milla lækkun) milli áranna 2016 og 2017 sem dreifð­ist nokkuð jafnt á tekju­hópa. Ef rýnt er í skatt­byrði hjóna og sam­búð­ar­fólks á miðjum aldri sem ekki hefur barn á sínu fram­færi kemur í ljós að skatt­byrði tekju­hæstu tíund­ar­innar minnk­aði úr 29,8 pró­sentum í 27,6 pró­sent milli áranna 2016 og 2017 meðan með­al­skatt­byrði allra tekju­tí­unda sama hóps dróst aðeins saman um 5 pró­mill.   

Sterkur grundvöllur undir kjaraumræðuna

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur lýst Tekju­sög­unni.is sem mik­il­vægu inn­leggi í sam­ráð stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins vegna yfir­stand­andi kjara­við­ræðna.

„Það er þörf á áreið­an­legum og óum­deildum gagna­grunni með launa­töl­fræði sem allir hafa aðgang að til að hægt sé að leggja mat á launa­þróun auk áhrifa skatta og bóta með óum­deildum og áreið­an­legum hætti. Ég tel að með Tekju­sög­unni séum við komin með styrkan grund­völl undir umræður um kjara­mál,“ segir Katrín í til­kynn­ingu á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. 

„Tekju­sagan gerir okkur kleift að sjá hvernig lífs­kjör mis­mun­andi hópa hafa þró­ast“

„Það er lyk­il­at­riði fyrir stjórn­völd að hafa aðgang að áreið­an­legum upp­lýs­ingum þegar kemur að stefnu­mótun og ákvarð­ana­töku. Tekju­sagan gerir okkur kleift að sjá hvernig lífs­kjör mis­mun­andi hópa hafa þró­ast, hvaða hópum hefur vegnað vel og hvaða hópar þurfa sér­staka athygli.“

Meðaltöl tekjutíunda borin saman

Á Tekju­sög­unni.is er stuðst við með­al­töl þar sem völdum hópum er skipt niður í 10 jafna hópa eftir atvinnu­tekjum. Hafa verður í huga að fjár­magnstekjum er afar mis­jafnt skipt á Íslandi sem ann­ars staðar. Árið 2016 rann tæpur helm­ingur allra fjár­magnstekna til tekju­hæsta 1 pró­sents­ins á Íslandi og eins og Stundin greindi frá í síð­asta blaði var tekju­hæsta 0,1 pró­sent Íslend­inga með 60 millj­arða í heild­ar­tekjur árið 2016, þar af 86 pró­sent fjár­magnstekjur. Þessi ójafna dreif­ing fjár­magnstekna gerir að verkum að skipt­ing í tekju­tí­undir gefur afar ófull­komna mynd af lífs­kjörum tekju­hæsta fólks­ins á Íslandi. 

Jafn­að­ar­sam­fé­lagiðÍslend­ingar búa við meiri tekju­jöfnuð en flestar þjóðir ef miðað er við Gini-stuð­ul­inn. Engu að síður eykst hlut­deild hátekju­hópanna í heild­ar­tekjum lands­manna með hverju árinu sem líður.

Sem dæmi má nefna að heild­ar­mán­að­ar­tekjur ein­stæðs manns sem til­heyrir tekju­hæstu tíund­inni voru sam­kvæmt Tekju­sög­unni.is tæpar 1,3 millj­ónir árið 2016, þar af 220 þús­und króna fjár­magnstekjur. Þetta er með­al­talið, en sam­kvæmt stað­tölum rík­is­skatt­stjóra, þar sem skatt­greið­endum er raðað eftir 100 tekju­bilum, þurfti ein­stak­lingur ekki að þéna nema 8 millj­ónir króna árið 2016 (666 þús­und krónur á mán­uði) til að til­heyra hæstu tekju­tí­und ein­stæð­inga. Hjón þurftu að þéna 22,2 millj­óna árs­tekjur (1.851 milljón á mán­uði) til að til­heyra hæstu tekju­tí­und hjóna. Þess skal þó getið að í stað­tölum rík­is­skatt­stjóra eru allir skatt­greið­endur með­taldir, ekki aðeins þeir sem eru á aldr­inum 25 til 64 ára eins og á Tekju­sög­unni, og hefur það áhrif til lækk­unar. Engu að síður gefur þetta vís­bend­ingar um að það þarf engar ofur­tekjur til að til­heyra tekju­hæsta hópnum á vefnum. 

Ef rýnt er í upp­lýs­ingar sem Stundin birt í síð­asta blaði um allra tekju­hæstu Íslend­ing­ana má sjá að ein­stak­lingur sem til­heyrði tekju­hæsta 0,1 pró­sent­inu fékk að með­al­tali 184,2 millj­ónir árið 2016, eða sem sam­svarar 15,3 millj­ónum á mán­uði. Tveir tekju­hæstu Íslend­ing­arnir fengu meira en 3 millj­arða (3000 millj­ónir eða 250 millj­ónir á mán­uði) og auk þeirra voru fjórir með meira en millj­arð í árs­tekjur. Þessir ofur­ríku ein­stak­lingar til­heyra sama tekju­hópnum, sam­kvæmt Tekju­sög­unni.is, og milli­tekju­fólk sem er með rétt yfir milljón á mán­uði. 

Tekju­hæstu tíund­irnar eru þannig afar ósam­stæður hópur. Ein­stæður smiður eða háskóla­kenn­ari getur  hæg­lega fallið í sama tekju­hóp og fjár­sterk­ustu útgerð­ar­eig­endur lands­ins. Lög­reglu­kona og arkítekt með tvö börn eru vís til að lenda í sama hópnum og fjöl­skyldur sem þéna hund­ruð millj­arða í fjár­magnstekjur á ári hverju. Tekju­sagan.is hefur því tak­markað nota­gildi þegar kemur að sam­an­burði á kjörum hópanna sem hafa það best og verst á Íslandi.  

Vildi sýna aðra mynd

Með því að bera ein­ungis saman aukn­ingu á ráð­stöf­un­ar­tekjum tekju­tí­unda er dregin upp sú mynd að lífs­kjör allra hópa hafi batnað álíka mikið und­an­farin ár. Að þessu leyti styður fram­setn­ingin og aðferða­fræðin við mál­flutn­ing sem Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur haldið á lofti, bæði sem

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár