Útskýringar og ósannindi Klaustursþingmanna

Þing­mennirnir sem náðust á upptöku á Klaustri bar voru sumir staðnir að ósannindum í kjölfar frétta­umfjöllunar. Tilraunir þeirra til að útskýra málin eða dreifa athyglinni reyndust erfiðari eftir því sem meiri upplýsingar litu dagsins ljós.

Afleiðingarnar af samtölum sex þingmanna á Klaustri bar 20. nóvember síðastliðinn eru enn að koma fram. Tveir þing­mannanna úr samsætinu hafa tekið sér leyfi og aðrir tveir voru reknir úr flokki sínum. Fylgi Miðflokksins hefur hrunið í könnunum. Flestir þing­mannanna eru nú einangraðir á Alþingi þegar kemur að samstarfi með öðrum.

Samtöl Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, Gunnars Braga Sveins­sonar, Bergþórs Ólasonar, Önnu Kolbrúnar Árna­dóttur, Karls Gauta Hjalta­sonar og Ólafs Ísleifs­sonar á upptökunni reyndist erfitt að útskýra. Fyrstu viðbrögð sumra voru að gera tilvist upptökunnar sjálfrar tortryggilega. Hafa þingmenn Miðflokksins nú leitað til lögmanns vegna mögulegrar máls­höfðunar á hendur Báru Halldórs­dóttur, sem tók upp samtöl þeirra.

Áður en fréttir upp úr upptökunum tóku að birtast og í kjölfar fyrstu birtinga, á meðan umfang upplýsinganna var ekki ljóst, létu þing­mennirnir ýmis orð falla í formi samtala við fjölmiðla, yfir­lýsinga á netinu og einka­samtala. Hafa sumir þeirra verið staðnir að hreinum ósannindum.

…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár