Guðbjörg í Ísfélaginu orðin einn stærsti hluthafi og lánveitandi einkarekins heilbrigðisfyrirtækis

Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, útgerðar­kona í Eyjum, er orðin eigandi tæplega þriðjungs hlutafjár í einka­rekna heilbrigðis­fyrirtækinu Evu Consortium. Félag Guðbjargar er auk þess einn stærsti lánveitandi Evu og veitti því 100 milljóna króna lán í fyrra.

Bakhjarl Sjálfstæðisflokksins og Evu
Bakhjarl Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Evu Guðbjörg Matth­í­as­dóttir veitir Sjálf­stæð­is­flokknum fjár­styrki á hverju ári og er einn stærstii hlut­hafi og lán­veit­andi einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­is­ins Evu Consortium.

Eignarhalds­félagið Kristinn ehf., fyrirtæki Guðbjargar Matthíasdóttur, er orðið eigandi 30 prósent hlutafjár í Evu Consortium ehf., sem á hlutabréf í einka­reknu heilbrigðis­fyrir­tækjunum Klíníkinni ehf., heima­hjúkrunar­fyrirtækinu Sinnum ehf. og sjúkra­hóteli sem rekið er í Ármúla í Reykjavík. Þetta kemur fram í ársreikningi Evu Consortium fyrir árið 2017.

Guðbjörg Matthíasdóttir er einn auðugasti Íslend­ingurinn og var hún lengi vel stærsti hluthafi Morgun­blaðsins hvar Ásdís Halla Braga­dóttir var stjórnar­maður. Sonur Guðbjargar, Einar Sigurðsson, er auk þess stjórnar­maður í Evu Consortium. Kristinn ehf. var áður eigandi rúmlega 9,8 prósent hlutafjár en jók hlut sinn í fyrra og á 30,2 prósent í fyrir­tækinu á móti 38,8 prósenta hlut Ásdísar Höllu Braga­dóttur og 31 prósent hlutar Ástu Þórarins­dóttur, stjórnar­formanns Fjármála­eftirlitsins, sem skipuð var af Bjarna Benedikts­syni. 

Umtalað fyrirtæki út af einkavæðingaráformum

Klíníkin hefur á liðnum árum verið umtalað fyrirtæki á Íslandi vegna áhuga forsvars­manna þess að auka einka­rekstrar­væðingu í íslenska heilbrigðis­kerfinu og byrja …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkra­trygginga með einka­rekstri í heilbrigðis­kerfinu

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra hefur staðið fyrir stór­aukinni einka­væðingu í heilbrigðis­kerfinu frá því að hann tók við starfinu. Eftirlit með þeim fjármunum sem fara frá ríkinu til einka­aðila hefur samhliða því ekki verið aukið. Willum Þór svaraði spurningum um meðal annars á Alþingi um miðjan mánuðinn.
Fréttir

Hjúkrunar­heimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu

Frá árinu 2009 hefur hjúkrunar­heimilið Sóltún fengið tæplega 20 milljarða króna frá íslenskra ríkinu. Um 90 prósent af tekjum Sóltúns koma frá ríkinu. Eigendurnir hafa tekið á þriðja milljarð króna út úr rekstrinum með því að selja fasteignir og lóðir og lækka hlutafé fyrir­tækisins. Allur reksturinn byggir hins vegar á umdeildum samningi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár