71% umsókna um vernd synjað

71% umsókna um alþjóð­lega vernd, sem teknar voru til efn­is­með­ferðar í fyrra, var synjað. Þorri umsókna hefur komið frá Georgíu, Albaníu og Makedóníu und­an­farin ár.

71% umsókna um vernd synjað

Útlend­inga­stofnun hafn­aði 332 af 467 umsóknum um alþjóð­lega vernd sem teknar voru til efn­is­með­ferðar í fyrra. Það er um 71% þeirra umsókna. Þorri umsókna var ekki tek­inn til efn­is­legrar með­ferðar.

Þetta kemur fram í stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar á Útlend­inga­stofnun. Í fyrra bár­ust 1.303 umsóknir um alþjóð­lega vernd, en 836 fengu ekki efn­is­með­ferð þar sem þær voru dregnar til baka, umsækj­andi fékk vernd í þriðja ríki eða Útlend­inga­stofnun beitti Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni svoköll­uðu. Í henni felst að umsækj­anda er vísað til ann­ars Schengen-ríkis þar sem mál hans er tekið fyrir.

Þannig var aðeins rúmur þriðj­ungur umsókna tek­inn til efn­is­með­ferðar í fyrra. Af þeim umsóknum var 84 aðilum veitt vernd. Alls 37 fengu svo­kall­aða við­bót­ar­vernd og 14 mann­úð­ar­leyfi.  332 umsóknum var synjað.

Þorri þeirra sem sóttu um alþjóð­lega vernd und­an­farin ár kemur frá Georgíu, Albaníu og Makedóníu. Í fyrra voru 10% umsækj­enda frá Írak og 3% frá Sýrlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár