Stærsta sushi-keðja landsins hættir með lax úr sjókvíum

Tokyo-sushi selur bara lax úr land­eldi Samherja. Hættir að bjóða upp á lax úr sjó­kvía­eldi. Eig­and­inn, Andrey Rudkov, seg­ist hafa viljað koma til móts við þá neyt­endur sem vilja ekki borða eld­is­lax úr sjó­kvía­eldi.

Stærsta sushi-keðja landsins hættir með lax úr sjókvíum
Enginn Arnarlax lengur Tokyo-sushi, stærsta sushi-keðja, kauð­pir ekki lengur lax úr sjó­kvía­eldi Arnarlax. Fram­kvæmda­stjóri Arnarlax, Víkingur Gunn­ars­son, sést hér á mynd með sjó­kvía­eld­is­lax frá Arn­ar­laxi. Mynd: MBL/Helgi Bjarnason

Stærsta sushi-keðja Íslands, Tokyo-sushi, er hætt að kaupa eld­is­lax úr sjó­kvía­eldi Arnarlax, stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki Íslands. Tokyo-sushi rekur sushi-staði í Glæsibæ, á Nýbýla­vegi auk þess sem fyr­ir­tækið rekur fjóra staði í versl­unum Krón­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í stað þess að kaupa lax úr sjó­kvía­eldi kaupir Tokyo-sushi nú lax frá land­eldi sem Samherji rekur í Öxar­firði. 

Mikil umræða hefur skap­ast á Íslandi um fram­tíð sjó­kvía­eldis í opnum kvíum. Ein af spurn­ing­unum sem er undir er sú spurn­ing hvort byggja eigi upp lax­eldi í opnum sjó­kvíum eða hvort færa eigi lax­eldið upp á land. Landeldi á laxi er dýr­ara og end­ur­spegl­ast það í verði vör­unnar en slíkt eldi er einnig umhverf­is­vænna þar sem það spillir ekki líf­ríki nátt­úr­unnar og engin hætta er á að eld­is­lax­inn bland­ist saman við villta laxa­stofna. For­svars­menn lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna sem stunda sjó­kvía­eldi halda því fram að ekki sé raun­hæft að byggja upp land­eldi á Íslandi þar sem það sé svo …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu