„Mér finnst þetta dapurt“

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er furðu­lostinn yfir ummælum þingmanna Flokks fólksins og Miðflokksins. Framkvæmda­stjórn og stjórn flokksins kemur saman vegna málsins seinna í dag.

„Við erum að tala um 12 prósent kjörinna Íslendinga sem eru að haga sér svona. Og ef skila­boðin eru svona, sem löggjafinn er að senda til fólksins í landinu þá er það bara dapurt og við tökum ekki þátt í því,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins í samtali við Stundina en hún er „undrandi“ og „hissa“ vegna upplóstrana af fundi þingmanna Flokks fólksins og Miðflokksins. „Mér finnst þetta bara dapurt og það lýsir bara þeim sem viðhafa svona munn­söfnuð fyrst og síðast, alveg rosalegri lítilsvirðingu og kven­fyrirlitningu, og kemur manni algjör­lega í opna skjöldu, sérstak­lega frá einstaklingum sem þykjast nú aldeilis vera jafnréttis­sinnaðir og allt það, það er greini­lega ekki svo, það er nokkuð ljóst.“

Ingu Sæland er brugðið vegna þess sem fram hefur komið en hún segir að framkvæmda­stjórn og stjórn Flokks fólksins muni koma saman klukkan fimm í dag til þess að ræða málið innan …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár