Bjarni lofaði Sigmundi að Gunnar Bragi „ætti inni hjá Sjálfstæðismönnum“ fyrir að skipa Geir

Einræður Gunnars Braga Sveins­sonar og Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar veita ótrú­lega inn­sýn í póli­tísk hrossa­kaup og sam­trygg­ingu stjórn­mála­stétt­innar við skipun sendi­herra. Hér má hlusta á vin­ina útskýra sendi­herrakap­al­inn.

Bjarni lofaði Sigmundi að Gunnar Bragi „ætti inni hjá Sjálfstæðismönnum“ fyrir að skipa Geir

Orða­skipti þing­manna sem voru hljóð­rituð á Klaustri Bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn veita ótrú­lega inn­sýn í póli­tísk hrossa­kaup og sam­trygg­ingu stjórn­mála­stétt­ar­innar við skipun sendi­herra í utan­rík­is­þjón­ust­unni. 

Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra, heldur langa ein­ræðu þar sem hann útskýrir hvað bjó að baki þegar hann skip­aði Geir H. Haarde og Árna Þór Sig­urðs­son sem sendi­herra árið 2014. 

Gunnar seg­ist hafa skipað Geir með það fyrir augum að fá sjálfur bit­ling í utan­rík­is­þjón­ust­unni ein­hvern tím­ann seinna og komið þeim vilja sínum á fram­færi við Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þá hafi hann gert Árna Þór, sem var þing­maður Vinstri grænna á þessum tíma, að sendi­herra til að draga athygl­ina frá umdeildri skipun Geirs.

„VG-kjarn­inn varð brjál­aður en hún Katrín sagði ekki orð vegna þess að ég átti fund með henni,“ segir Gunnar Bragi og lýsir Árna Þór sem „fávita“.

Nú í morgun sagði Gunnar Bragi í við­talið við Rás 2 að frá­sögn hans hefði verið röng og hann verið að „bulla og ljúga“.

Á upp­tök­unni má þó heyra Sigmund Davíð Gunn­laugs­son stað­festa þann hluta frá­sagn­ar­innar er snýr að því að Gunnar Bragi hafi ætl­ast til að Sjálf­stæð­is­menn laun­uðu honum þann greiða að skipa Geir H. Haarde sem sendi­herra í Washington.

Þannig er ljóst að annað hvort lugu bæði Gunnar Bragi og Sig­mundur að kol­legum sínum í Mið­flokknum og Flokki fólks­ins, eða þá að skýr­ing Gunnars Braga stenst ekki.

Bjarni „fylgdi málinu vel eftir“

Sagðist myndu launa greið­annBjarni sagði Sigmundi Davíð að Gunnar Bragi „ætti inni hjá Sjálf­stæð­is­mönnum“ ef Geir Haarde yrði skip­aður sendi­herra.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sem var for­sæt­is­ráð­herra og odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í rík­is­stjórn, seg­ist sjálfur hafa talað við Bjarna Bene­dikts­son um óskir Gunnars Braga.

Bjarni hafi heitið Sigmundi því að ef Geir Haarde yrði skip­aður sendi­herra „ætti Gunnar inni hjá Sjálf­stæð­is­mönnum“. 

Þá segir Sig­mundur að Bjarni hafi „fylgt mál­inu vel eftir“ og að síðar hafi þeir átt fund með Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, núver­andi utan­rík­is­ráð­herra, og hann virst fús að hjálpa til.

Erfitt er að greina orða­skil í fram­hald­inu, en svo virð­ist sem hlut­irnir hafi ekki gengið jafn smurt fyrir sig og kapp­arnir bundu vonir við.

Vildi greiða fyrir að skipa GeirGeir H. Haarde var dæmdur fyrir stjórn­ar­skrár­brot af stór­felldu gáleysi.Gunnar Bragi skip­aði hann sendi­herra árið 2014 og bað Bjarna Bene­dikts­son um að fá sjálfur bit­ling í stað­inn ein­hvern tím­ann seinna.

Gunnar Bragi hreykir sér af þeirri snilld sem hafi falist í því að skipa Árna Þór sem sendi­herra á sama tíma og Geir H. Haarde. Þannig hafi Árni setið uppi með „allan skít­inn“. 

Raunar hafi Geir Haarde sjálfur áttað sig á því síðar hvað þetta var klókt. „Svo sagði Geir við mig löngu seinna: „Þakka þér fyrir. Það var eng­inn sem gagn­rýndi mig,“ segir Gunnar Bragi.

Þá greinir hann frá því að rétt eftir fund­inn með Bjarna Bene­dikts­syni hafi Þórólfur Gíslason, kaup­fé­lags­stjóri Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, hringt og verið búinn að frétta að Gunnar sækt­ist eftir sendi­herra­stöðu. 

Íslenska fyrirkomulagið býður upp á frændhygli

Utan­rík­is­ráð­herra hefur sér­staka heim­ild til að víkja frá aug­lýs­inga­skyldu við skipun ráðu­neyt­is­stjóra og sendi­herra sam­kvæmt lögum um utan­rík­is­þjón­ustu Íslands. Skip­un­ar­valdið er póli­tískt og í höndum utan­rík­is­ráð­herra hverju sinni án þess að skýr við­mið liggi fyrir um hæfni og for­sendur ráðn­ingar.

Fyr­ir­komu­lagið er öðru­vísi í Danmörku, Noregi og Finn­landi, en þar eru lausar stöður sendi­herra aug­lýstar innan utan­rík­is­þjón­ust­unnar og ákvarð­anir um skipun teknar tekin á grund­velli fag­legs mats á hæfi, árangri og frammi­stöðu umsækj­enda, jafn­vel að und­an­geng­inni til­lögu til rík­is­stjórnar, kon­ungs­valds eða for­seta. 

Einræður Gunnars Braga og Sig­mundar Davíðs eru mögnuð sam­tíma­heim­ild um þá frænd­hygli sem hefur tíðkast við skipun sendi­herra á Íslandi. 

Gunnar Bragi:

„Þegar ég ákvað það að skipa Geir H. Haarde sendi­herra í Washington þá ræddi ég við Sigurð Inga. Honum var ekki skemmt enda hafði hann ákært Geir. Ég ræddi þetta auð­vitað við alla flokka. Ég sá það að ég gæti ekki skipað Geir einn sendi­herra, ég gæti ekki hyglað Geir einum, það yrði of þungur biti fyrir þingið og alla. Það sem ég gerði var að gera Árna Þór að sendi­herra, sem var alveg ókeypis í raun­inni – þú verður að athuga það að hann er bara fáviti sko þó hann sé frændi minn – og hvað ger­ist þá?

VG-kjarn­inn varð brjál­aður en hún Katrín sagði ekki orð vegna þess að ég átti fund með henni og [hér heyr­ist illa hvað er sagt] þar sem ég tryggði að hún myndi ekki segja neitt. Og Geir slapp í gegnum þetta eins og smjör á smokknum hjá honum þarna… honum, hvað heitir hann söngv­ar­inn, Friðriki Ómari. (…)

En Geir nefni­lega sagði við mig eitt dálítið sér­stakt, hann sagði: „Ég var brjál­aður við þig Gunni þegar þú varst að gera Árna Þór að sendi­herra en svo fatt­aði ég þetta allt í einu, að athyglin fór öll á Árna og ég var mjög glaður.“

[Hér skýtur einn við­staddra inn: ‘Sagði hver við þig?’ og Gunnar Bragi svarar: ‘Geir H. Haarde’]. 

„Og það var ekki nóg með það að vinstri græna liðið var brjálað, því Árni er auð­vitað ekk­ert annað en sendi­tík Stein­gríms. En plottið mitt var að Geir yrði í skjól­inu hjá Árna og það virk­aði ekki bara 100 pró­sent heldur 170 pró­sent því að Árni fékk allan skít­inn. Svo sagði Geir við mig löngu seinna: „Þakka þér fyrir. Það var eng­inn sem gagn­rýndi mig.“ Og það var málið, það gagn­rýndi þetta nán­ast eng­inn. Og það er bara vegna þess að ég lét Árna taka allan slag­inn. 

Þegar ég á fund með Bjarna í fjár­mála­ráðu­neyt­inu og ég segi við Bjarna: „Það er algjör­lega sjálf­sagt. Auðvitað geri ég Geir að sendi­herra,“ og þá segi ég við Bjarna: „Og mér finnst sann­gjarnt að þið horfið til svip­aðra hluta þegar ég þarf á því að halda.“ Og það er ekki vegna þess að ég hafi verið að hugsa um að skipta um flokk. […]

Ég var ekki kom­inn út þegar Þórólfur (Gíslason) hringir og spyr: „Ætlar þú að verða sendi­herra?“ […] Ég var ekki kom­inn út úr ráðu­neyt­inu.“ 

Sigmundur Davíð:

Sig­mundur Davíð lýsir svo mál­inu eins og það horfir við honum. Hann talar lægra en Gunnar Bragi og erf­ið­ara er að greina hvað hann segir. 

„Út frá þessu, af því að ég veit að þetta er rétt með sendi­herra­stöð­una. Ég nefndi þetta við Bjarna. Bjarni má eiga það, þó að mér hafi oft fund­ist hann vera veik­lund­aður, en hann við­ur­kenndi þetta […] Bjarni fór út um víðan völl en nið­ur­staðan var sú að hann hefði fall­ist á það að ef þetta gengi eftir, þá ætti Gunnar inni hjá Sjálf­stæð­is­mönnum. […] Næsta skref var að hitta Bjarna með Guðlaugi Þór. […] Bjarni má eiga það að hann fylgdi mál­inu vel eftir. […] Guð­laugur Þór bara: Jájá, ef það er eitt­hvað sem þig vantar. […] Nið­ur­staðan var sú að Bjarni bara sagði okkur það, að nú leysið þið þetta. En hvernig á maður að bera sig að með að fylgja mál­inu eftir ef Guð­laugur Þór, utan­rík­is­ráð­herra, hefur engan áhuga á að klára málið? En for­maður flokks­ins er búinn að segja honum að hann eigi að klára þetta.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár