Þingmaður Miðflokksins kallar Ingu Sæland „húrrandi klikkaða kuntu“

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins sagði að Inga Sæland væri „fokk­ing tryllt“ við sam­flokks­menn hennar Karl Gauta Hjalta­son og Ólaf Ísleifs­son. Hann reyndi að sann­færa þá um að ganga í Mið­flokk­inn.

Bergþór Ólason Þingmaðurinn reyndi að sannfæra tvo þingmenn Flokks fólksins um að ganga í Miðflokkinn.

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, kallar Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins „húrr­andi klikk­aða kuntu“ á hljóð­upp­töku sem Stundin hefur undir höndum.

„Hún er fokk­ing tryllt,“ sagði Bergþór við Karl Gauta Hjalta­son og Ólaf Ísleifs­son, þing­menn Flokks fólks­ins, í við­ur­vist flokks­fé­laga sinna, Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur og Gunnars Braga Sveins­sonar á Klaustur bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

„Hún er fokk­ing tryllt. Komið til okkar.“

Þing­menn­irnir sátu þar að drykkju og ræddu hugs­an­leg skipti Ólafs og Karls Gauta yfir í Mið­flokk­inn. Sam­skiptin áttu sér stað í vitna við­ur­vist og náð­ust orða­skiptin á upp­töku.

„Mig langar alveg óskap­lega mikið til þess að vinna nánar með ykkur en við erum búnir að vinna, sem hefur verið mjög gott,“ sagði Bergþór. „Ég held að staða ykkar tveggja verði miklu mun traust­ari innan Mið­flokks­ins heldur en hún verður innan Flokks fólks­ins þegar kemur að næstu kosn­ingum. Ég er bara að biðja ykkur um að hugsa um þetta, því í mínum huga er eig­in­lega alveg öruggt að þið verðið áfram þing­menn fyrir Flokk fólks­ins í næstu kosn­ingum.

En þetta snýst allt um, og ég held við séum öll í þessum slag til að láta gott af okkur leiða, og það eru miklu meiri líkur til þess að það ger­ist undir merkjum Mið­flokks­ins heldur en Flokks fólks­ins af því að þið eruð með þessa húrr­andi klikk­uðu kuntu sem for­mann Flokks fólks­ins, sem þið ráðið ekk­ert við. Þið ráðið ekk­ert við hana. Segið mér ef ég hef rangt fyrir mér. Ég mundi ekki ráða við hana, Sig­mundur mundi ekki. Hún er fokk­ing tryllt. Komið til okkar.“

Ekki náð­ist í Bergþór við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár