María Guð­munds­dóttir „Ég tek ekk­ert nærri mér lengur,“ segir María. „Enda þýðir það ekki neitt.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

Sama hvað fólki finnst

Hin 83 ára María Guð­munds­dóttir vekur athygli fyrir atorku­semi og sköp­un­ar­gleði. Hún byrj­aði í leik­list­inni á sjö­tugs­aldri og hefur síðan verið í fjölda þátta og bíó­mynda. Núna und­ir­býr hún sig fyrir uppi­stands­sýn­ingu og segir öllu máli skipta að gera það sem maður hefur gaman af.

Margir Íslend­ingar þekkja Maríu Guð­munds­dóttur, hjúkr­un­ar­fræð­ing í Mos­fellsbæ, af leik­list­ar­hæfi­leikum hennar, ein­stakri kímni­gáfu og lífs­gleði. María hóf leik­fer­il­inn ekki fyrr en hún var komin á eft­ir­laun, 60 ára gömul. Síðan þá hefur hún stolið sen­unni í fjölda kvik­mynda, verið fasta­gestur í sjón­varps­þáttum Steinda Jr. og kitlað hlát­ur­taugar leik­hús­gesta með alls konar upp­á­tækjum.

Í dag er María 83 ára og heldur ótrauð áfram að spreyta sig á ólíkum formum sviðs­lista og taka að sér ný hlut­verk. Næsta verk­efni er uppi­stand með hópi kvenna í Þjóð­leik­hús­kjall­ar­anum 20. jan­úar. „Ég held að maður eigi bara að lifa líf­inu lif­andi og gera það sem maður hefur gaman af,“ segir María. „Og ef maður hefur gaman af því þá fún­kerar það yfir­leitt.“

María ólst upp á Akureyri og segir föður sinn og móður bæði hafa verið mjög skemmti­legt fólk. Móðir hennar spil­aði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár