Rífa og endurbyggja ríflega 200 ára gamalt hús

Unnið er að end­ur­bygg­ingu Hafn­ar­strætis 18 í Reykja­vík. Húsið var mjög illa farið en verður til mik­illar prýði þegar end­ur­bótum verður lokið.

Unnið er að end­ur­bótum á hús­inu að Hafn­ar­stræti 18 í Reykja­vík þessa dag­ana. Húsið, sem að stofni til er frá árinu 1795 er meðal þekkt­ari húsa borg­ar­innar. Þar var verslun frá upp­hafi enda stutt frá hafn­ar­svæði Reykja­víkur, svo sem nafn göt­unnar ber með sér. Húsið var hins vegar farið að láta veru­lega á sjá og eftir vel heppn­aðar end­ur­bætur ann­arra húsa í Hafn­ar­stræti síð­ustu miss­eri má segja að Hafn­ar­stræti 18 hafi verið orðið lýti á götu­mynd­inni. Það mun nú breyt­ast en stefnt er að því að fram­kvæmdum verði lokið haustið 2019.

Sökum ald­urs er hluti húss­ins frið­aður, það er neðri hæðin öll. Því taka fram­kvæmd­irnar mark af því en þær eru unnar í sam­vinnu við Minja­stofnun. Feðginin Páll Bjarna­son og Ólöf Páls­dóttir, arki­tektar hjá P ARK teikni­stofu hafa hannað breyt­ing­arnar á hús­næð­inu og segja í við­tali við Stundina að til hafi staðið að lyfta hús­inu af grunn­inum á meðan að gerður yrði kjall­ari undir það. Þegar byrjað hafi verið að kanna málið hafi hins vegar komið í ljós að húsið var afar illa farið, meðal ann­ars hafði efri hæðin brunnið á ein­hverjum tíma­punkti. Húsið var svo illa farið að ekki var talið for­svar­an­legt annað en að rífa það. Verður timbur og annað bygg­ing­ar­efni sem varð­veislu­gildi hefur geymt og notað í nýbygg­ingu sem verður í sama stíl og húsið var í upp úr alda­mót­unum 1900. Eigandi húss­ins er Sjö­stjarnan ehf, félag Skúla Gunnars Sig­fús­sonar sem oft­ast er kenndur við Subway.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár