Vilja bara fá tæki­færi Mardin og Didar flúðu með Darin litla son sinn frá Írak þar sem öfga­menn höfðu hótað Mardin líf­láti. Þeim hefur verið neitað um hæli hér á landi en von­ast til að fá atvinnu- og dval­ar­leyfi svo þau geti verið hér áfram. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Okkur líður eins og að ef við snertum gull verði það að grjóti“

Kúrdísk hjón sem flúðu frá Írak með barn­ungan son sinn eiga nú á hættu að verða send úr landi. Á heima­slóðum þeirra ráða stríðs­herrar sem hafa hótað að brenna fjöl­skyldu­föð­ur­inn lif­andi.

Hjónin Mardin og Didar dvelja nú, ásamt Darin syni sínum og ófæddu barni, í hús­næði Útlend­inga­stofn­unar í Hafn­ar­firði og krossa fingur í von um að lög­fræð­ingi þeirra tak­ist að koma í veg fyrir að þau verði send úr landi. Ef þau verða send úr landi yrði það til Frakk­lands, á grund­velli Dyfl­innar-reglu­gerð­ar­innar, en þangað flúðu þau frá Írak. Yrðu þau flutt til Frakk­lands hafa þau ástæðu til að ótt­ast að þaðan yrðu þau send áfram til Íraks og þar segja þau að líf þeirra sé í hættu. Þau Didar og Mardin eru Kúrdar, með tak­mörkuð rétt­indi í Írak sökum upp­runa síns. Þau flýðu þegar vopn­aðar sveitir sjíta-múslima hót­uðu Mardin því að hann yrði brenndur lif­andi léti hann ekki undan þrýst­ingi um að koma mönnum sem voru þeim þókn­an­legir í störf hjá hjálp­ar­sam­tökum á svæð­inu. Verði þau send til Íraks telja þau ljóst að alvara yrði gerð úr þeirri hótun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár