Hannesarskýrslan gefi tilefni til að „taka upp þráðinn“ við Breta

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son spurði um afsök­un­ar­beiðni frá Bretum vegna banka­hruns­ins á grund­velli skýrslu Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar. Bjarni Bene­dikts­son úti­lokar ekki sam­töl við erlenda aðila.

Hannesarskýrslan gefi tilefni til að „taka upp þráðinn“ við Breta

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, úti­lokar ekki að ræða við erlend stjórn­völd um fram­göngu þeirra í banka­hrun­inu á grund­velli skýrslu Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar sem birt var í vik­unni. Í skýrsl­unni, sem Hannes vann fyrir Félags­vís­inda­stofnun að ósk Bjarna, er því haldið fram að gjörðir erlendra aðila hafi valdið þeirri keðju­verkun sem orsak­aði banka­hrunið.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, vakti máls á skýrsl­unni í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag. „Nokkrir af vinstri kanti stjórn­mál­anna hafa að vísu sett út á að í skýrslu um erlenda áhrifa­þætti banka­hruns­ins sé of mikið fjalla um erlenda áhrifa­þætti banka­hruns­ins, of lítið um skoð­anir þeirra sjálfra á inn­an­land­s­póli­tík­inni,“ sagði Sig­mundur.

„Í leið­inni hafa menn hnýtt í aðal­höf­und skýrsl­unnar og per­sónu hans og jafnan sama fólk og heldur því fram að það sé algjör­lega ófor­svar­an­legt að gagn­rýna fræði­menn. En þá vænt­an­lega bara nógu vinstri­s­inn­aða fræði­menn.“

Sig­mundur spurði Bjarna hvernig hann ætl­aði að fylgja skýrsl­unni eftir. „Verða þessi mál tekin upp við full­trúa erlendra ríkja og alþjóða­stofn­ana og verður til að mynda farið fram á afsök­un­ar­beiðni frá breskum stjórn­völdum?“

Bjarni sagði að skýrslan væri mik­il­væg sam­an­tekt á erlendum áhrifa­þáttum banka­hruns­ins. Hann sagð­ist per­sónu­lega marg­sinnis hafa haft uppi athuga­semdir við breska ráða­menn vegna fram­göngu Breta á tíma hruns­ins.

„En ég ætla alls ekki að úti­loka að skýrslan gefi upp til­efni til að taka upp þráð­inn, sér­stak­lega í ein­hverjum til­vikum, án þess að ég sé til­bú­inn til að úttala mig um það hvaða mál það yrðu þá nákvæm­lega sem þar ættu í hlut.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hrunið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár