Sólborg berst gegn kyn­ferð­is­legri áreitni á net­inu með því að birta opin­ber­lega skila­boð sem hún og fleiri hafa fengið. Hún seg­ist stundum ótt­ast við­brögðin en að það breyt­ist ekk­ert ef ábyrgð­inni er ekki haldið að þeim sem ástunda slíka hegðun. Mynd: Heiða Helgadóttir

Strákar sem áreita á netinu

„Fávitar“ er síða á Instagram þar sem vit­und­ar­vakn­ing um kyn­ferð­is­legt áreiti á net­inu á sér stað og birt eru skjá­skot af slíkum skila­boðum.

„Ég held að þú værir rosa sæt með beltið mitt um háls­inn á þér,“ segir í skila­boðum sem birt voru á síð­unni Fávitar á sam­skipta­miðl­inum Instagram, sem sér­hæfir sig í vit­und­ar­vakn­ingu um kyn­ferð­is­lega áreitni á net­inu, aðal­lega með því að birta skjá­skot af slíkum skila­boðum. Oft eru það óum­beðnar myndir af kyn­færum eða orð­send­ingar sem mis­bjóða, eins og dæmið hér að framan sýnir, en einnig til­boð um vændi og sví­virð­ingar til þeirra sem hafna frekara sam­neyti við við­kom­andi: „Éttu skít,“ sagði einn. Sólborg Guð­brands­dóttir, tón­list­ar­kona og sam­fé­lags­miðla­stjarna, er stjórn­andi síð­unnar ásamt fyrr­ver­andi kenn­ara sínum og góð­vini, Styrmi Bark­ar­syni, sem búsettur er í Svíþjóð.

 

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár