Fólkið með grænu fingurna

Við þekkjum öll svona fólk, sem með undra­verðum hætti glæðir allar plöntur lífi og gerir nærum­hverfi sitt vænt, grænt og fag­urt, að því er viriðst áreynslu­laust. Hver er gald­ur­inn? Hér segja nokkrir ástríðu­fullir plöntu­rækt­endur plöntu­sögur og gefa góð ráð um ræktun.

Sumt fólk kaupir sér plöntur sem fara vel við hús­gögnin. Svo eru það þau sem velja sér hús­gögn sem fara vel við plönt­urnar. Í því við­horfi liggur kannski mun­ur­inn á þeim sem hafa þann eig­in­leika að glæða plöntur lífi og hinna sem eiga erfitt með það. Plöntu­fólkið, sem eru karlar og konur á mis­mun­andi aldri, segir að dag­leg umönnun plantna veiti því ómælda ánægju. Hjarta þess tekur kipp þegar sprotar brjót­ast fram og ný blöð mynd­ast. 

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár