Sorgarsaga loforðanna um afnám verðtryggingar

Nú þegar nær 10 ár eru liðin frá hruni er verð­trygg­ingin umdeilda enn við lýði. Sjö flokkar hafa setið í rík­is­stjórn á tíma­bil­inu, en engar breyt­ingar hafa orðið á fyr­ir­komu­lag­inu. Fjöldi nefnda hefur þó verið settur á fót til að afnema verð­trygg­ingu, sem fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra sagði „ekki flókið“.

Sorgarsaga loforðanna um afnám verðtryggingar
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur „Rík­is­stjórnin mun taka mark­viss skref á kjör­tíma­bil­inu til afnáms verð­trygg­ingar á lánum,“ segir í stjórn­ar­sátt­mála. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, mun skipa nýjan sér­fræð­inga­hóp á næst­unni til að end­ur­skoða verð­trygg­ing­una. Þetta verður þriðji hóp­ur­inn af þessum toga sem stjórn­völd setja á fót á þeim tæp­lega 10 árum sem liðin eru frá banka­hrun­inu. Engar breyt­ingar hafa þó orðið á fyr­ir­komu­lagi verð­trygg­ingar.

Töluverð óánægja ríkti í sam­fé­lag­inu í kjöl­far hruns þegar höf­uð­stóll verð­tryggðra lána rauk upp vegna verð­bólgu­skots. Fjöldi hús­næð­is­lána hækk­aði umfram verð­mæti fast­eigna og voru kynntar ýmsar leiðir til að koma til móts við skuld­setta. Fyrir kosn­ingar 2013 lof­uðu Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn „leið­rétt­ingu“ verð­tryggðra hús­næð­is­lána, sem kom til fram­kvæmda 2014 og gekk að mestu til tekju- og eigna­meiri heim­ila. Tillaga um afnám verð­trygg­ingar nýrra lána, sem unnin var sam­hliða leið­rétt­ing­unni, kom aldrei til fram­kvæmda. „Þetta er ekki flókið en það virð­ast ekki vera nein tak­mörk fyrir því hvað reynt er að snúa út úr hlut­unum,“ sagði Sig­mundur Davíð um afnám verð­trygg­ingar vorið 2013, fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár