Sjálfstæðismenn lögðust gegn borgarlínu: „Myllusteinn um háls skattgreiðenda“

Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks greiddu atkvæði gegn Borg­ar­línu á fundi borg­ar­stjórnar í gær. Fram­bjóð­endur flokks­ins eru ósam­mála um ágæti fram­kvæmd­anna.

Sjálfstæðismenn lögðust gegn borgarlínu: „Myllusteinn um háls skattgreiðenda“
Myllu­steinn um háls Kjartan Magn­ús­son, frá­far­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að Borg­ar­lína yrði myllu­steinn um háls skatt­greið­enda. Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins kusu gegn svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins varð­andi Borg­ar­línu á borg­ar­stjórn­ar­fundi í gær. Mynd: Pressphotos.biz

Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins greiddu atkvæði á fundi borg­ar­stjórnar í gær gegn svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæðs­ins varð­andi svo­kall­aða Borg­ar­línu. Málið snérist um sam­þykkt Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem skil­greindir eru sam­göngu- og þró­unarásar fyrir Borg­ar­línu, nýtt kerfi almenn­ings­sam­gangna sem sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­ir­búa nú í sam­ein­ingu.

Kjartan Magn­ús­son, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, sagði á fundi borg­ar­stjórnar í gær að Borg­ar­lína yrði myllu­steinn um háls skatt­greið­enda. „Ég held að öll þessi vinna í kringum Borg­ar­línu sé því marki brennd að eiga að þjóna eins og margar aðrar glæru­sýn­ingar borg­ar­stjóra, sem eins konar villu­ljós gagn­vart þeim mála­flokkum sem meiri­hlut­inn ræður ekki við,“ sagði Kjartan. „Borg­ar­lína, mark­miðið er göf­ugt, en það er hins vegar mjög ólík­legt að við náum að efla almenn­ings­sam­göngur sem nokkru nemi sér­stak­lega með þeirri aðgerð og það er alveg ljóst að það ger­ist ekki strax. Ég tel að Borg­ar­línu­hug­myndin sé að miklu leyti villu­ljós, sem núver­andi meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Bjartrar fram­tíðar, Pírata og Vinstri grænna setur á flot til þess að draga athygl­ina frá slæ­legri frammi­stöðu þess­ara flokka í almenn­ings­sam­göngum í Reykja­vík.“

Afstaða frambjóðenda flokksins á skjön

Aðeins einn af núver­andi borg­ar­full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks, Marta Guð­jóns­dóttir, sæk­ist eftir end­ur­kjöri í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í vor. Hún sagði á fund­inum stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins í mála­flokknum vera skýra, flokk­ur­inn vilji sam­göngu­mið­stöð í Kringl­unni og efla almenn­ings­sam­göngur. „Við viljum skoða alla sam­göngu­kosti, en við höfum sett mik­inn fyr­ir­vara hvað varðar Borg­ar­línu,“ sagði Marta. „Við vitum að á end­anum lendir það á skatt­greið­endum að borga brús­ann, bæði fram­kvæmd­ina og rekst­ur­inn.“

Eyþór Arnalds

Eyþór Arnalds leiðir lista flokks­ins í borg­inni, en Hildur Björns­dóttir skipar 2. sætið. Hildur hefur í við­tölum lýst sig jákvæða gagn­vart Borg­ar­línu. Í við­tali við Vísi sagði Hildur ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að Reykja­vík vinni Borg­ar­línu í sam­vinnu við nágranna­sveit­ar­fé­lögin. „Ég er ung og mér finnst gaman að hafa fram­tíð­ar­sýn og það er margt spenn­andi í þessum hug­myndum um borg­ar­línu en fólk hefur líka ýmsar áhyggjur, til dæmis að kostn­að­ur­inn sé mjög van­reikn­aður og að það eigi að loka ein­hverjum stórum stofn­brautum sem nú þegar eru stíflaðar og svo fram­vegis og mér finnst allt í lagi að taka til­lit til þess að fólk hafi þessar áhyggjur,“ sagði Hildur.

Oddviti fram­boðs­ins, Eyþór Arnalds, hefur sagt að hann telji að Borg­ar­lína muni auka á vand­ann í gatna­kerf­inu. Í kosn­inga­á­herslum flokks­ins, sem Eyþór kynnti á dög­unum segir: „Bætum Strætó með tíð­ari ferðum, bættu leið­ar­kerfi og betri skýlum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár