Deilan um útboð Isavia: 230 milljóna gróði af verslun 66° Norður í Leifsstöð

Tvö mál vegna útboðs­ins umdeilda á versl­un­ar­rým­inu í Leifs­stöð árið 2014 eru ennþá fyrir dóm­stólum. Drífa ehf., Icewear, rekur sitt mál fyrir dóm­stólum og Kaffitár reynir að fá upp­lýs­ingar um útboðið eftir opin­berum leiðum. Á meðan græða fyr­ir­tækin, sem Drífa og Kaffitár áttu í sam­keppni við, á tá á fingri í Leifs­stöð ár eftir ár.

Deilan um útboð Isavia: 230 milljóna gróði af verslun 66° Norður í Leifsstöð
Hættir ekki Aðal­heiður Héð­ins­dóttir, stofn­andi Kaffi­társ, hættir ekki að reyna að leita upp­lýs­inga um útboð Isavia á versl­un­ar­rými í Leifs­stöð árið 2014. Fyr­ir­tækið, sem meðal ann­ars var tekið fram yfir Kaffitár, Lag­ar­d­ére Travel Retail, græðir vel á starf­semi sinni. Mynd: ODD STEFAN

Tæplega 230 millj­óna króna hagn­aður var á verslun íslenska fata­fram­leið­and­ans 66° Norður í fFug­stöð Leifs Eiríks­sonar á Mið­nes­heiði árið 2016. Versl­unin seldi þá vörur fyrir rúm­lega 1.380 millj­ónir króna og jókst salan um tæp­lega 250 millj­ónir króna á milli ára. Rekstr­ar­fé­lag versl­un­ar­innar, Mið­nes­heiði ehf., gat fyrir vikið greitt 400 millj­óna króna arð til móð­ur­fé­lags 66° Norður, Sjó­klæða­gerð­ar­innar ehf., en rekstur versl­un­ar­innar hefur gengið ótrú­lega vel á liðnum árum og var tæp­lega 220 millj­óna króna hagn­aður á henni árið 2015. Þessar upp­lýs­ingar koma fram í árs­reikn­ingi Mið­nes­heiðar ehf. fyrir árið 2016. 

66° Norður var eitt af þeim fyr­ir­tækjum sem var valið til að fá að vera með verslun í Leifs­stöð í umdeildu útboði rekstr­ar­að­ila Leifs­stöðar, rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Isavia, árið 2014. 

Eigendur 66° Norður eru Helgi Rúnar Ósk­ars­son, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, og Bjarney Harð­ar­dóttir. 

Veltan og hagn­að­ur­inn af fyr­ir­tæki þeirra sýnir hversu verð­mætt versl­un­ar­rýmið í Leifs­stöð getur verið fyrir eig­endur versl­ana sem þar eru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Útboð í Leifsstöð

Í gullstöð Leifs Eiríkssonar á Miðnesheiði
FréttirÚtboð í Leifsstöð

Í gull­stöð Leifs Eiríks­sonar á Mið­nes­heiði

Harðar deilur hafa staðið um útboðið á versl­un­ar­hús­næði í Leifs­stöð árið 2014 og eru tvö mál enn í kerf­inu og eða fyrir dóm­stólum. Fyr­ir­tækin í Leifs­stöð eru flest gull­námur fyrir eig­endur sína og má til dæmis nefna Lag­ar­d­ére Travel Retail sem nær ein­okar sölu á mat­vöru í Leifs­stöð og 66° Norður. Stundin birtir hér úttekt á versl­un­ar­rým­inu í Leifs­stöð sem sýnir umsvif, tekjur, veltu og hagnað hvers fyr­ir­tækis þar sem þessar upp­lýs­ingar eru aðgengi­legar.
Fyrirtæki aðstoðarkaupfélagsstjóra KS borgar út 100 milljónir vegna matarsölu í Leifsstöð
FréttirÚtboð í Leifsstöð

Fyr­ir­tæki aðstoð­ar­kaup­fé­lags­stjóra KS borgar út 100 millj­ónir vegna mat­ar­sölu í Leifs­stöð

Lag­ar­d­ére Travel Retail ehf. hefur greitt tæp­lega 130 millj­óna króna arð til hlut­hafa sinna á tveimur fyrstu rekstr­ar­árum sínum. Kaup­fé­lags­stjóri hjá KS, Sigurjón Rúnar Rafnsson, var meðal stjórn­enda félags­ins, sem fékk versl­un­ar­rými í Leifs­stöð í umdeildu útboði árið 2014. Nýir hlut­hafar í Lag­ar­d­ére Travel Retail vilja ekk­ert segja um við­skipti sín. Aða­heiður Héð­ins­dóttir í Kaffi­tári stendur í ströngu við að leita réttar síns gegn rík­is­fyr­ir­tæk­inu Isavia út af útboð­inu.
Isavia hafnar því að tengslin við Kaupfélag Skagfirðinga hafi haft áhrif á útboðið í Leifsstöð
FréttirÚtboð í Leifsstöð

Isavia hafnar því að tengslin við Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hafi haft áhrif á útboðið í Leifs­stöð

Rekstr­ar­fyr­ir­tæki Leif­stöðvar segir að hag­stæð­asta til­boðið hafi ein­fald­lega verið valið í útboði um versl­un­ar­pláss í Leifs­stöð í fyrra. Isavia mun fara alla leið með mál Kaffi­társ sem enn hefur ekki fengið gögnin um útboðið. Isavia segir að tengsl við Kaup­fé­lag Skag­firð­inga hafi ekki haft áhrif á að fyr­ir­tæki í eigu íslenska eign­ar­halds­fé­lags­ins NQ ehf. og franska flug­vall­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Lag­ar­d­ére fékk úthlutað hús­næði undir sex rekstr­ar­ein­ingar í Leifs­stöð.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár