Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það sem er faglega æskilegt er ekki alltaf pólitískt mögulegt“

Birgir Jak­obs­son frá­far­andi land­læknir tekur við starfi aðstoð­ar­manns heil­brigð­is­ráð­herra í næsta mán­uði. Hann segir Ísland ára­tugum á eftir Norð­ur­lönd­unum í þróun heil­brigð­is­kerf­is­ins og varar við auknum einka­rekstri í heil­brigð­is­þjón­ustu.

„Ég veit að það eru margir sem telja mig hafa verið krítískan og sumir hafa jafn­vel sagt að ég hafi talað niður íslenskt heil­brigð­is­kerfi. En ef þú getur ekki talað opin­skátt um það sem betur má fara þá verða engar breyt­ingar.“

Það má með sanni segja að Birgir Jak­obs­son, frá­far­andi land­læknir, hafi látið mikið að sér kveða á þeim þremur árum sem hann hefur gegnt emb­ætt­inu. Hann hefur verið óhræddur við að benda á galla kerf­is­ins, hvernig það sé kerfið sjálft sem kalli á auk­inn einka­rekstur í heil­brigð­is­þjón­ustu og ýti undir mikla lyfja­neyslu Íslend­inga. „Við verðum að líta til þess hvernig aðrar þjóðir hafa gert þetta,“ segir hann, en Birgir hefur meðal ann­ars talað fyrir nýjum, hvetj­andi fjár­mögn­un­ar­leiðum í opin­berri heil­brigð­is­þjón­ustu og segir Ísland verða að marka sér stefnu í mála­flokknum. Í næsta mán­uði tekur Birgir við starfi aðstoð­ar­manns heil­brigð­is­ráð­herra, en þver­tekur fyrir að hann sé á leið í póli­tík. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár