Töldu sig vanhæf til aðkomu að Landsréttarmálinu í fyrra en studdu ráðherra í kvöld

Brynjar Níelsson greiddi atkvæði gegn van­traust­s­til­lögu sem lögð var fram vegna þess að ráð­herra skip­aði meðal ann­ars eig­in­konu hans sem dóm­ara með ólög­legum hætti.

Töldu sig vanhæf til aðkomu að Landsréttarmálinu í fyrra en studdu ráðherra í kvöld

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, töldu sig van­hæf til að taka þátt í máls­með­ferð og atkvæða­greiðslu um skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara á Alþingi vegna tengsla við umsækj­endur um dóm­ara­emb­ætti. Hins vegar tóku þau þátt í atkvæða­greiðslu um van­traust­s­til­lögu gegn dóms­mála­ráð­herra í kvöld, en til­lagan var lögð fram vegna fram­göngu ráð­herra við skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara. 

Brynjar Níelsson er eig­in­maður Arn­fríðar Ein­ars­dóttur, en Sigríður Andersen ákvað að skipa hana sem dóm­ara við Lands­rétt þrátt fyrir að hæfn­is­nefnd hefði ekki metið hana sem eina af 15 hæf­ustu umsækj­end­unum. Í grein­ar­gerð Vil­hjálms H. Vil­hjálms­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns til Hæsta­réttar þar sem farið er fram á að Arn­fríður víki sæti í dóms­máli vegna þess að hún hafi verið skipuð dóm­ari með ólög­mætum hætti er spurt hvers vegna Sigríði var svo mikið í mun að skipa Arnfríði í emb­ætti dóm­ara. „Hvers vegna voru hæf­ustu umsækj­end­urnir sam­kvæmt ítar­legu og rök­studdu áliti dóm­nefndar ekki skip­aðir? Hvers vegna kaus dóms­mála­ráð­herra að brjóta lög til þess að Arn­fríður gæti orðið lands­rétt­ar­dóm­ari?“ segir í grein­ar­gerð­inni. 

Nokkrum vikum eftir að Sigríður Andersen hafði skipað eig­in­konu Brynjars dóm­ara með ólög­legum hætti ákvað Brynjar að gefa Sigríði eftir odd­vita­sætið á fram­boðs­lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. Við þetta varð Sigríður eini kven­kyns odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Alþing­is­kosn­ing­unum 2017 og þannig lík­legri en ella til að sitja áfram á ráð­herra­stóli ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn yrði í rík­is­stjórn.

Svandís er fyrr­ver­andi eig­in­kona og barns­móðir Ástráðs Har­alds­sonar. Ástráður var á meðal hæf­ustu umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti við Lands­rétt að mati hæfn­is­nefnd­ar­innar, en Sigríður Andersen gekk engu að síður fram­hjá honum við skipun dóm­ara án full­nægj­andi rann­sóknar og rök­stuðn­ings. Í kjöl­farið höfð­aði Ástráður mál gegn rík­inu og voru honum dæmdar miska­bætur í Hæsta­rétti vegna ólög­legrar emb­ætt­is­færslu ráð­herra. Í umræð­unum um Lands­rétt­ar­málið og stöðu dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í kvöld vék Halldóra Mogensen, þing­kona Pírata, sér­stak­lega að því hvernig gengið var fram­hjá Ástráði við skipun dóm­ara og velti því upp hvort það hefði verið gert vegna stjórn­mála­skoð­ana hans.

Brynjar Níelsson og Svandís Svav­ars­dóttir tóku ekki til máls í umræð­unum um van­traust­s­til­lög­una gegn dóms­mála­ráð­herra í kvöld en greiddu bæði atkvæði gegn til­lög­unni. Kjarninn greindi frá því í dag að Brynjar og Svandís ætl­uðu að taka þátt í atkvæða­greiðsl­unni þrátt fyrir að hafa áður talið rétt að stíga til hliðar þegar skipun Lands­rétt­ar­dóm­ara var til umfjöll­unar á Alþingi. Haft var eftir Brynjari að hann hygð­ist kjósa eftir sinni bestu sann­fær­ingu. „Ann­ars hef ég bara ekk­ert velt því fyrir mér, þetta er bara nýkomið en svona fljótt á litið fynd­ist mér annað frá­leitt.“ Svan­dís sagð­ist einnig ætla að taka þátt í atkvæða­greiðsl­unni. „Þetta varðar ekki skipan dóm­ara í Lands­rétt heldur van­traust á ráð­herra í rík­is­stjórn sem ég á sæti í.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár