Ógagn­sæið hjá GAMMA Öfugt við Almenna leigu­fé­lag GAMMA þá iiggur eig­enda­hópur Heima­valla fyrir og sam­anstendur hann af þekktum efn­uðum fjár­festum og líf­eyr­is­sjóðum. Sam­an­lagt eiga þessi félög um 3.500 íbúðir. Mynd: Shutterstock

Hvernig eigendur leigufélaga GAMMA og Heimavalla ætla að græða á 3500 heimilum

Þeir sögulegu atburðir eiga sér stað að tvö leigu­félög í eigu fjárfesta verða skráð á markað á Íslandi. Óljóst hvort hluthafar Heima­valla og Almenna leigu­félags GAMMA eru skammtíma- eða langtíma­fjárfestar. Möguleiki á skjót­fengnum gróða á leigu­íbúðum eftir fáheyrt góðæri á íslenska fasteigna­markaðnum.

 Stofnandi sænska húsgagna­fram­leiðandans Ikea, Ingvar Kamprad, gaf það út ítrekað meðan hann lifði að fyrir­tækið skyldi aldrei skráð á hlutabréfa­markað. Ein af ástæðunum sem Kamprad nefndi fyrir því var að hlutabréfa­markaðir stjórnist af skammtíma­hagsmunum. „Með þeirri skammsýnu gróða­hugsun sem einkennir hlutabréfa­markaðinn hefðum við aldrei náð svona mikilli velgengni,“ sagði Kamprad í viðtali árið 2008.

Ingvar Kamprad lést nú í lok janúar og var víða fjallað um þá ósk hans – eina af hans síðustu – að Ikea myndi aldrei fara á hlutabréfa­markað. Í einu af síðustu viðtölunum sem tekið var við Kamprad, viðtali leik­stjórans og leikarans Felix Herngrens við hann í fyrra, sagði Kamprad meðal annars: „Ég vona að Ikea eigi etir að lifa lengi og að fyrir­tækið verði aldrei skráð á hlutabréfa­markað,“ sagði Kamprad. 

Ástæðurnar fyrir því að Ikea á ekki að fara á hlutabréfa­markað eru nokkrar. Kamprad vildi halda eignar­haldinu á fyrir­tækinu innan fjöl­skyldu sinnar sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár