Stjórnmálamenn töluðu upp United Silicon og fögnuðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“

„Þetta er mjög stór stund,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, þegar fyrsta skóflustungan var tekin að verk­smiðju United Silicon, sem fór í gjald­þrot í dag eftir að hafa marg­brotið starfs­leyfi og mein­tan fjár­drátt for­stjór­ans. Bæj­ar­stjór­inn í Reykja­nesbæ gagn­rýndi úrtöluraddir. „Við erum búin að bíða lengi,“ sagði iðn­að­ar­ráð­herra.

Stjórnmálamenn töluðu upp United Silicon og fögnuðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“
Stjórn­mála­menn tóku þátt Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra tóku skóflustungu að verk­smiðju United Silicon, ásamt for­stjór­anum, Magnúsi Garð­ar­syni, sem nú sætir rann­sókn vegna meints fjár­dráttar upp á hálfan millj­arð króna. Mynd: Aðsend

Stjórn­mála­menn tóku ein­arða afstöðu með verk­smiðju United Silicon og dæmi voru um að þeir ávíttu gagn­rýnendur verk­smiðj­unnar fyrir að lýsa efa­semdum um fram­kvæmd­ina. Í dag fór stjórn félags­ins United Silicon fram á gjald­þrota­skipti vegna þess að félagið réði ekki við að gera úrbætur á verk­smiðj­unni, sem hafði marg­brotið starfs­leyfi. 

For­stjóri og einn eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins, Magnús Garð­ars­son, hafði verið stað­inn að alvar­legum brotum í rekstri fyr­ir­tækis í Danmörku og hafði hann einnig verið lát­inn hætta hjá dönsku verk­taka­fyr­ir­tæki vegna starfs­hátta sinna. Engu að síður var hann dyggi­lega studdur af íslenskum stjórn­mála­mönnum og Arion banki ákvað að lána til verk­efn­is­ins og fá líf­eyr­is­sjóði með sér í verk­efnið, eftir að vanda­málin höfðu komið upp.

Ráð­herrar skál­uðu með Magnús Garð­ar­syni, fyrr­ver­andi for­stjóri United Silicon, 27. ágúst 2014, dag­inn sem fram­kvæmdir voru form­lega hafnar, en hann átti síðar eftir að verða kærður fyrir fjár­svik upp á hálfan millj­arð króna. Þá röð­uðu Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, þá iðn­að­ar­ráð­herra, sér upp við hlið Magnúsar og tóku með honum fyrstu skóflustung­urnar að verk­smiðj­unni, sem síðar var lokað vegna meng­unar, van­efnda og end­ur­tek­inna elds­voða.

Fram kom í fréttum Stöðvar 2 að stjórn­mála­menn­irnir fögn­uðu ákaft. „Þetta er mjög stór stund,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. „Hér eru menn að hefja fram­kvæmdir við það sem verður, ef allt gengur sam­kvæmt áætlun, stærsta sílíkon-verk­smiðja í heimi. Þetta er líka fyrsti áfang­inn í miklum fram­kvæmdum víða á Íslandi. Svo­leiðis að þetta er mjög stór stund.“

Árið eftir átti Sig­mundur Davíð eftir að und­ir­rita vilja­yf­ir­lýs­ingu fyrir hönd rík­is­stjórn Íslands fyrir álveri á vegum kín­verskra aðila nærri Skaga­strönd. 

Fljót­lega kom í ljós að sjálft verk­smiðju­hús United Silicon var brot á deiliskipu­lagi, þar sem verk­smiðjan var heilum 13 metrum hærri en deiliskipu­lagt hafði leyft, og því lög­brot.

United Silicon hefur fengið 30 millj­ónir króna í rík­is­að­stoð. Í frétt Stöðvar 2 kom fram að Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, þáver­andi iðn­að­ar­ráð­herra, „fagn­aði sér­stak­lega“ fyrir hönd Suð­ur­nesja, þar sem hún væri Kefl­vík­ingur.  

„Mér finnst þetta vera dag­ur­inn þar sem þró­un­inni verður snúið við.“

„Þetta er ótrú­lega stór dagur fyrir þetta sam­fé­lag. Við erum búin að bíða lengi. Það er búið að vera brostnar vonir og atburðir sem við þurfum ekk­ert að rifja upp í dag. En mér finnst þetta vera dag­ur­inn þar sem þró­un­inni verður snúið við. Þannig að þetta er góður dagur, stór dagur, sem von­andi þýðir það að hjólin eru farin að snú­ast í rétta átt,“ sagði hún.

Erlendir bankar vildu ekki fjármagna

Láns­fjár­mögnun fyrir verk­efnið var í höndum Arion banka. Þegar Magnús Garð­ars­son var spurður hvers vegna, sagði Magnús að erlendir bankar vildu ekki lána. „Það var auð­veld­ara en að gera það úti, því að það eru engir erlendir bankar ennþá sem þora að lána til Íslands.“

Arion banki fékk líf­eyr­is­sjóði til verk­efn­is­ins. Sjálfur átti bank­inn 11 pró­sent í félag­inu, en Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn 5,6 pró­sent, Festa líf­eyr­is­sjóður 3,7 pró­sent og eft­ir­launa­sjóður atvinnu­flug­manna hálft pró­sent. Eign­ar­hald United Silicon var hins vegar að miklu leyti ógegn­sætt. Stór hluti af kaupum líf­eyr­is­sjóða í verk­smiðj­unni átti sér stað þegar var orðið ljóst að vanda­mál voru við­loð­andi verk­smiðj­una og bygg­ingu hennar.

Í ljós áttu eftir að koma fjöl­mörg brot United Silicon á starfs­leyfi sem Stundin fjall­aði ítar­lega og reglu­lega um. For­stjór­inn, sem hafði skilið eftir sig sviðna slóð í Danmörku, eins og Stundin greindi frá strax í júlí 2016. Þrátt fyrir þá for­sögu, að fyr­ir­tæki í hans eigu var sektað um tæpar 7 millj­ónir íslenskra króna vegna brota á rétt­indum pól­skra verka­mann­anna og fór stuttu síðar í þrot, ákváðu stjórn­mála­menn að styðja hann og Arion banki að lána honum og fá fleiri til verk­efn­is­ins. Í fag­tíma­riti danska stétt­ar­fé­lags­sam­bands­ins BJMF er Magnús nafn­greindur sér­stak­lega vegna bíræf­inna brota. Þar kemur fram að hann hafi neitað að gera samn­inga við pólsku verka­menn­ina, til þess eins að auðg­ast per­sónu­lega. Magnús var rek­inn frá fyr­ir­tæk­inu COWI vegna starfs­hátta sinna, svika og brota. Mótmælt var við heim­ili við­skipta­fé­laga Magnúsar vegna máls­ins, þann sama og Magnús fékk til liðs með sér í United Silicon.

Hann var einnig hand­tek­inn í des­em­ber 2016 fyrir ofsa­akstur á Reykja­nes­braut­inni og Tesla-bif­reið hans gerð upp­tæk. Hann hefur verið ákærður fyrir almanna­hættu­brot og lík­ams­árás af gáleysi með ofsa­akstr­inum. Neyð­ar­lín­unni höfðu borist sím­töl um ofsa­akst­ur­inn, bæði fyrir og eftir slys, þar sem karl­maður slas­að­ist alvar­lega og var fluttur á sjúkra­hús. 

Gagnrýndi þá sem efuðust um United Silicon

Grein Árna Sig­fús­sonarÁrni Sig­fús­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ, gagn­rýndi efa­semd­arraddir í grein þar sem hann fagn­aði United Silicon og hrós­aði sér og Sjálf­stæð­is­flokknum af þraut­seigj­unni við að varða braut verk­smiðj­unnar.

Árni Sig­fús­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar til árs­ins 2014, skrif­aði grein eftir skóflustung­una þar sem hann gerði lítið úr þeim sem gagn­rýndu van­efndir United Silicon og lýstu efa­semdum sínum á fram­kvæmd­inni.

„Ég óska bæj­ar­búum til ham­ingju með nýtt glæsi­legt fyr­ir­tæki; United Silicon,“ skrif­aði Árni og lýsti þrot­lausri bar­áttu sinni og Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir fyr­ir­tæk­inu.

„Því miður hafa margir verið til þess að tala þetta verk­efni niður. Skemmst er að minn­ast þegar full­yrt var að lóð­ar­fram­kvæmdir rétt fyrir bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingar væru aðeins sjón­ar­spil Árna Sig­fús­sonar og sjálf­stæð­is­manna. Sagt var að ræðan um að kís­il­verið væri að koma væri inni­halds­laus og nú væru menn svo úrvinda að þeir stilltu upp tækjum í lóð­ar­fram­kvæmdir rétt fyrir kosn­ingar. Nefnd voru dæmi um að United Silicon hefði ekki einu sinni greitt reikn­inga fyrir lóð­inni. Það átti að vera dæmi þess hvað þetta mál væri mik­ill til­bún­ingur. Þeir sem þannig töl­uðu hefðu án efa fyrir löngu hent þessum aðilum fyrir borð.“

„Óbilandi trú“

Þá árétt­aði Árni að íbúar þyrftu að átta sig á mik­il­vægi þess að hann og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn börð­ust fyrir komu United Silicon.

„Það er óvíst að bæj­ar­búar geri sér grein fyrir mik­il­vægi þess að við sem stýrðum bæj­ar­fé­lag­inu síð­asta ára­tug gæfum aldrei upp bar­áttu fyrir fleiri atvinnu­tæki­færum með betur laun­uðum störfum. Það þýddi auð­vitað að fylgja verk­efnum fast eftir með óbilandi trú á tæki­færin og fólkið á Reykja­nesi, þrátt fyrir mót­byr. Ég leit á það sem mitt stærsta hlut­verk að gef­ast aldrei upp á neinum sviðum sem snertu íbúa og tæki­færi á Reykja­nes­inu. Þótt það verði ekki úr stóli bæj­ar­stjóra, mun ég fylgja því eftir að slík verk­efni verði til og að þau geti risið hér í Reykja­nesbæ, ef þess er nokkur kostur. Ég óska bæj­ar­búum til ham­ingju með nýtt glæsi­legt fyr­ir­tæki; United Silicon.“

United Silicon fór í dag fram á gjald­þrota­skipti. Í yfir­lýs­ingu vegna beiðn­innar segir að „ódýr og óvand­aður jað­ar­bún­aður hafi orsakað tíðar bil­anir og skapað erf­ið­leika við fram­leiðsl­una“ og að sam­kvæmt úttekt þyrfti 25 millj­ónir evra til þess að full­klára verk­smiðj­una. Í fréttum RÚV er haft eftir upp­lýs­inga­full­trúa Arion banka að verk­smiðja United Silicon sé enn góður fjár­fest­ing­ar­kostur, að alþjóð­legir aðilar hafi sýnt henni áhuga og að ein­göngu tæki eitt og hálft ár að gera hana starf­hæfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Áhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálfbærnistefnu sína og kísilverið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvarlega“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálf­bærni­stefnu sína og kís­il­verið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvar­lega“

Arion banki er með­vit­aður um þá ábyrgð sem hvílir á bank­anum varð­andi mögu­lega end­ur­opnun kís­il­vers­ins í Helguvík. Kís­il­ver­inu var lokað vegna meng­unar árið 2017. Stefna bank­ans í umhverf­is­málum hefur tekið breyt­ingum á liðnum árum og svarar bank­inn meðal ann­ars spurn­ingum um hvernig þessa stefna rímar við end­ur­opnun meng­andi kís­il­vers.
Guðbrandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kísilverksmiðjunni
ViðskiptiÁhrif kísilvers United Silicon

Guð­brandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kís­il­verk­smiðj­unni

Arion banki hyggst opna aftur kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík sem hefur verið lokuð í tæpt ár. Allir bæj­ar­full­trúar í Reykja­nesbæ hafa lýst sig and­víga opn­un­inni og 350 athuga­semdir bár­ust frá íbúum í bænum. Guð­brandur Ein­ars­son', bæj­ar­full­trúi og þing­maður VIð­reisnar, lýsir áhrifum verk­smiðj­unnar á heilsu­far sitt og útskýrir hvers vegna má ekki opna hana aftur.
Dularfullur barón keypti í kísilveri og seldi virkjanaréttindi
Fréttir

Dul­ar­fullur barón keypti í kís­il­veri og seldi virkj­ana­rétt­indi

Ítalskur barón, Felix Von Longo-Lieb­en­stein, hefur verið virkur í jarða­kaupum á Íslandi frá síð­ustu alda­mótum en hefur náð að halda sér utan kast­ljóss fjöl­miðla. Hann var einn af hlut­höf­unum í kís­il­fyr­ir­tæk­inu United Silicon og seldi dótt­ur­fé­lagi HS Orku vatns­rétt­indi út af virkjun á Ströndum. Illa gengur að fá upp­lýs­ingar um bar­ón­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár