Myndskeið sýnir United Silicon losa eiturefni út í andrúmsloftið í skjóli nætur

Hættu­legar vinnu­að­stæður, losun eit­ur­efna í skjóli nætur, gríð­ar­leg mengun og meng­un­ar­varnir sem virka ekki eru á meðal þess sem sést á mynd­skeiðum sem tekin voru innan í verk­smiðju United Silicon á dög­unum og Stundin hefur undir höndum. „Áfell­is­dómur yfir eft­ir­lits­stofn­unum,“ segir starfs­maður sem blöskrar ástandið.

Myndskeið sýnir United Silicon losa eiturefni út í andrúmsloftið í skjóli nætur
Dælt út í myrkrið Hættu­legum eit­ur­efnum í ryki í reyk­hreinsi­kerfi United Silicon er dælt út að næt­ur­lagi.

Kís­il­málm­verk­smiðja United Silicon hefur að und­an­förnu losað hættu­leg eit­ur­efni í skjóli nætur út úr reyk­hreinsi­virki verk­smiðj­unnar og út í and­rúms­loftið. Um er að ræða ryk sem verður til við bruna á timbri en timbrið er notað til þess að hita upp fyrsta ofn­inn af fjórum sem United Silicon hyggst gang­setja á næstu árum. Mynd­skeiðið var tekið um miðjan des­em­ber en sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar innan verk­smiðj­unnar hefur þetta verið gert ítrekað, alltaf að næt­ur­lagi.

Þess ber að geta að United Silicon hefur aldrei tek­ist að halda kjör­hita­stigi á ofn­inum frá því hann var fyrst gang­settur 13. nóv­em­ber. Af þeim sökum hefur verk­smiðjan brennt mun meira af timbri en áætlað var en umrætt timbur var og er blautt og því verða til hættu­leg og krabba­meins­vald­andi efni við brun­ann. Efnin sem um ræðir eru svokölluð PAH-efni og B(a)P-efni. Ekki er þó hægt að full­yrða hversu mikið magn af eit­ur­efnum leyn­ist í þess­ari losun verk­smiðj­unnar þar sem þess­ari aðferð hefur verið haldið leyndri fyrir eft­ir­lits­stofn­unum. Stundin hefur áður fjallað um þau krabba­meins­vald­andi efni sem ber­ast frá verk­smiðj­unni.

Hér sjást starfs­menn United Silicon hleypa eit­ur­efnum beint út í and­rúms­loftið á vinnu­svæði verk­smiðj­unnar í Helguvík.

Ofninn slær reglulega út

Gríð­ar­leg mengun barst frá kís­il­málm­verk­smiðj­unni í dag og var hún vel sýni­leg frá Reykja­nesbæ. Eitt af þeim mynd­skeiðum sem Stundin birtir nú er af umhverfi verk­smiðj­unnar um klukkan hálf þrjú í dag. Á mynd­skeið­inu sést hvar meng­un­ina leggur frá verk­smiðj­unni og í átt að íbúa­byggð sem er aðeins tæpan kíló­metra frá vinnu­svæð­inu. Þá berst enn stæk bruna­lykt frá verk­smiðj­unni en tals­menn hennar höfðu lofað því í yfir­lýs­ingu sem þeir sendu frá sér í lok nóv­em­ber að hún yrði úr sög­unni í lok þess mán­aðar því þá var gert ráð fyrir að ofn­inn væri kom­inn í full afköst. Hann er ekki enn kom­inn í full afköst. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar slær ofn­inn reglu­lega út þegar hann er far­inn að nota hámarks­orku og því þarf reglu­lega að kveikja á honum aftur. Þessar bil­anir eru sagðar í raf­kerfi verk­smiðj­unnar og ekki enn sé búið að laga þær.

„Þetta er ein mesta skíta­hola sem ég hef komið í enda eru hér menn að segja upp störfum ein­fald­lega af örygg­is­á­stæðum“

Þá sjást ömur­legar vinnu­að­stæður starfs­manna United Silicon í einu af mynd­skeið­unum. Umrætt mynd­skeið er tekið innan í verk­smiðj­unni á starfs­svæði tuga starfs­manna sem sjá ekki fram fyrir sig af mengun. Reykur og stæk bruna­lykt er um alla verk­smiðju og þá skiptir engu hvort unnið er við hlið­ina á ofn­inum sjálfum eða inni í sér­stöku stjórn­her­bergi sem á að vera alveg laust við reyk. Sjúkra­her­bergi starfs­manna sést einnig á þeim mynd­skeiðum sem Stundin hefur undir höndum. Það er að mestu óklárað, grút­skítugt og engin áhöld, plástrar eða annað sem þyrfti að nota ef alvar­legt slys yrði á staðnum. „Það færi eng­inn þarna inn með opið sár til dæmis. Þetta er eins og her­bergi á sjúkra­húsi á stríðs­svæði  sem hefur orðið fyrir sprengju­árás og er nátt­úru­lega ekki nokkrum manni bjóð­andi,“ sagði starfs­maður United Silicon sem Stundin ræddi við.

Ömur­legar vinnu­að­stæður starfs­manna United Silicon sjást í þessu mynd­skeiði hér sem tekið er innan í verk­smiðj­unni. Þessi gríð­ar­lega mengun inn­an­húss er ekki eins­dæmi.

Yfirlýsingar ekki í takt við raunveruleikann

Þessar lýs­ingar eru ekki eins­dæmi því Stundin hefur áður í umfjöll­unum sínum bæði rætt við sjálf­stæða verk­taka sem hafa unnið á svæð­inu sem og aðra starfs­menn sem einnig blöskr­aði ástandið. Þessar lýs­ingar eru þó í mót­sögn við yfir­lýs­ingar United Silicon en kís­il­málm­verk­smiðjan sendi frá sér eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu í lok nóv­em­ber: „United Silicon telur rétt að það komi fram að starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa mætt sér­stak­lega vel til vinnu og eng­inn þeirra kvartað undan óþæg­indum vegna reyks eða lyktar. United Silicon er annt um starfs­menn sína sem og bæj­ar­búa alla, heilsa þeirra og öryggi er í for­gangi.“

Af mynd­skeið­unum að dæma sam­ræm­ast yfir­lýs­ingar United Silicon ekki veru­leik­anum. Þvert á móti hafa starfs­menn oft kvartað yfir loft­gæðum á vinnu­svæð­inu og sér­stak­lega inni í verk­smiðj­unni en því sé haldið leyndu „...og sópað undir teppi“ eins og einn starfs­maður orð­aði það.

Svona leit umhverfi kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon út klukkan 14:30 í dag. Gríð­ar­lega mengun lagði frá verk­smiðj­unni.

„Hvar er heilbrigðiseftirlitið? Vinnueftirlitið?“

„Ef fólk vissi bara hvað færi hér fram þá væri löngu búið að loka þess­ari verk­smiðju, það er engin spurn­ing,“ segir starfs­maður sem Stundin ræddi við. Hann segir að sér sé umhugað um öryggi og heilsu vinnu­fé­laga sinna „Menn eru að segja upp störfum ein­fald­lega af örygg­is­á­stæðum. Það situr í mér hversu mátt­lausar eft­ir­lits­stofn­an­irnar eru. Ég trúi ekki öðru en að eft­ir­lits­að­ilar hafi tekið út sjúkra­her­bergið, starfs­manna­að­stöð­una og sjálft vinnu­svæðið en ekk­ert hefur breyst og ekk­ert hefur verið lagað. Hvar er heil­brigð­is­eft­ir­litið? Vinnu­eft­ir­litið? Slökkvi­liðið? Umhverf­is­stofnun?“ spyr starfs­mað­ur­inn.

Á íbúa­fundi sem var haldin í Reykja­nesbæ í des­em­ber kom fram að Umhverf­is­stofnun hefði skráð 11 frá­vik frá ákvæðum starfs­leyfis United Silicon og var kraf­ist úrbóta. Engin við­brögð feng­ust frá kís­il­málm­verk­smiðj­unni og því hót­aði Umhverf­is­stofnun þving­unar­úr­ræðum. Um leið og stofn­unin hót­aði að loka verk­smiðj­unni var loks­ins komið til móts þær kröfur um úrbætur sem lágu fyrir eftir eft­ir­lits­heim­sóknir á vinnu­svæðið. Sigríður Krist­jáns­dóttir, full­trúi Umhverf­is­stofn­unar á umræddum íbúa­fundi, sagði líka að skrán­ingar United Silicon hefðu ekki verið full­nægj­andi og að full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins hafi í ofan á lag gefið Umhverf­is­stofnun vís­vit­andi mis­vísandi upp­lýs­ingar til þess að afvega­leiða stofn­un­ina.

Lugu að Umhverfisstofnun

Um var að ræða mæli sem Umhverf­is­stofnun krafð­ist þess að yrði settur upp í rjáfur á reyk­hreinsi­virki verk­smiðj­unnar. Þann 11. nóv­em­ber höfðu for­svars­menn United Silicon sagt það á fundi með Umhverf­is­stofnun að búið væri að kaupa umræddan mæli en að veð­ur­að­stæður hefðu hamlað upp­setn­ingu. Í ljós kom hins vegar að United Silicon hafði aldrei keypt mæl­inn. Með hót­unum um þving­unar­úr­ræði tókst Umhverf­is­stofnun að þrýsta á United Silicon að kaupa umræddan mæli en kvittun fyrir greiðslu hans varð til þess að þeim var leyft að kveikja á ofni verk­smiðj­unnar á ný. Kvitt­unin var hins vegar dag­sett tölu­vert síðar en United Silicon hafði sagt Umhverf­is­stofnun. Því lugu for­svars­menn verk­smiðj­unnar að eft­ir­lits­stofn­un­inni. Þá lýstu full­trúar Umhverf­is­stofn­unar erf­iðum sam­skiptum við for­svars­menn United Silicon.

Starfs­maður verk­smiðj­unnar seg­ist í sam­tali við Stundina undr­ast aðgerð­ar­leysi eft­ir­lits­stofn­ana. „Mér er umhugað um heilsu þeirra sem ég starfa með og með þessu áfram­haldi verður stór­slys. Þetta er áfell­is­dómur yfir þessum eft­ir­lits­stofn­unum sem kvitta upp á þessa vit­leysu. Ég hef unnið í sam­bæri­legum störfum í mörg ár og ég hef aldrei á ævinni orðið vitni að öðru eins rugli og á sér stað þarna á degi hverjum og nú er ég bara að tala um aðstæður starfs­manna. Þá er meng­unin öll eftir og hvernig við erum að losa þetta út fram hjá meng­un­ar­vörn­unum. Það er allt annað mál og stærra,“ sagði starfs­mað­ur­inn.

Fleiri myndskeið næstu daga

Stundin hefur á und­an­förnum mán­uðum og vikum ítar­lega fjallað um kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon, aðdrag­and­ann að bygg­ingu hennar og vafa­sama við­skipta­sögu eig­and­ans, Magnúsar Garð­ars­sonar og mun halda því áfram. Þau mynd­skeið sem Stundin birtir nú sýna meng­un­ina fyrir innan og utan verk­smiðj­una auk þess sem eitt mynd­skeið sýnir umrædda losun eit­ur­efna í skjóli næt­urs.

Stundin hefur fleiri mynd­skeið og ljós­myndir undir höndum sem hún mun birta næstu daga og sýna bágar vinnu­að­stæður, gríð­ar­lega mengun og mörg alvar­leg mis­tök sem hafa átt sér stað í verk­smiðj­unni. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Stundin birtir mynd­skeið frá verk­smiðj­unni. Í byrjun des­em­ber birti Stundin mynd­skeið sem sýndi United Silicon brjóta reglur þegar þeir loft­ræstu verk­smiðj­una með því að nota stórar dyr.

For­svars­menn verk­smiðj­unnar hafa líkt meng­un­inni við ára­móta­brennu og sendi Umhverf­is­stofnun frá sér yfir­lýs­ingu í lok nóv­em­ber, verk­smiðj­unni til stuðn­ings, þar sem kom fram að fyr­ir­tækið væri „í byrj­un­arfasa“ og að „mæl­ingar á meng­un­ar­efnum [hefðu] aldrei farið yfir skil­greind við­mið­un­ar­mörk“. Í lok nóv­em­ber sagði Umhverf­is­stofnun það vera mat sitt og sótt­varn­ar­læknis að „ekki [væri] þörf á að grípa til aðgerða að svo stöddu“, en í eft­ir­lits­ferðum í des­em­ber fund­ust ell­efu frá­vik frá starfs­leyfi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Áhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálfbærnistefnu sína og kísilverið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvarlega“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Arion um sjálf­bærni­stefnu sína og kís­il­verið: „Bankinn tekur þá ábyrgð mjög alvar­lega“

Arion banki er með­vit­aður um þá ábyrgð sem hvílir á bank­anum varð­andi mögu­lega end­ur­opnun kís­il­vers­ins í Helguvík. Kís­il­ver­inu var lokað vegna meng­unar árið 2017. Stefna bank­ans í umhverf­is­málum hefur tekið breyt­ingum á liðnum árum og svarar bank­inn meðal ann­ars spurn­ingum um hvernig þessa stefna rímar við end­ur­opnun meng­andi kís­il­vers.
Guðbrandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kísilverksmiðjunni
ViðskiptiÁhrif kísilvers United Silicon

Guð­brandur þurfti púst til að hjálpa sér við að anda út af kís­il­verk­smiðj­unni

Arion banki hyggst opna aftur kís­il­verk­smiðj­una í Helguvík sem hefur verið lokuð í tæpt ár. Allir bæj­ar­full­trúar í Reykja­nesbæ hafa lýst sig and­víga opn­un­inni og 350 athuga­semdir bár­ust frá íbúum í bænum. Guð­brandur Ein­ars­son', bæj­ar­full­trúi og þing­maður VIð­reisnar, lýsir áhrifum verk­smiðj­unnar á heilsu­far sitt og útskýrir hvers vegna má ekki opna hana aftur.
Stjórnmálamenn töluðu upp United Silicon og fögnuðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“
FréttirÁhrif kísilvers United Silicon

Stjórn­mála­menn töl­uðu upp United Silicon og fögn­uðu ákaft: „Við erum búin að bíða lengi“

„Þetta er mjög stór stund,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þá for­sæt­is­ráð­herra, þegar fyrsta skóflustungan var tekin að verk­smiðju United Silicon, sem fór í gjald­þrot í dag eftir að hafa marg­brotið starfs­leyfi og mein­tan fjár­drátt for­stjór­ans. Bæj­ar­stjór­inn í Reykja­nesbæ gagn­rýndi úrtöluraddir. „Við erum búin að bíða lengi,“ sagði iðn­að­ar­ráð­herra.
Dularfullur barón keypti í kísilveri og seldi virkjanaréttindi
Fréttir

Dul­ar­fullur barón keypti í kís­il­veri og seldi virkj­ana­rétt­indi

Ítalskur barón, Felix Von Longo-Lieb­en­stein, hefur verið virkur í jarða­kaupum á Íslandi frá síð­ustu alda­mótum en hefur náð að halda sér utan kast­ljóss fjöl­miðla. Hann var einn af hlut­höf­unum í kís­il­fyr­ir­tæk­inu United Silicon og seldi dótt­ur­fé­lagi HS Orku vatns­rétt­indi út af virkjun á Ströndum. Illa gengur að fá upp­lýs­ingar um bar­ón­inn.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár