Barnafjölskylda svipt framfærslufé vegna reglugerðar Sigríðar um útlendinga

Hert útlendinga­stefna er þegar farin að bitna á fólki sem sækir um hæli á Íslandi. Tilkynna þurfti félagsmála­yfirvöldum um útlendinga í neyð eftir að Útlendinga­stofnun felldi niður alla þjónustu við barna­fjölskyldu.

Sigríður Andersen
Sigríður Andersen Dóms­mála­ráð­herra lagði fram reglu­gerð sem breytti stöðu hæl­is­leit­enda á Íslandi til hins verra. Mynd: Pressphotos

Reglugerð Sigríðar Andersen dómsmála­ráðherra um útlendinga er þegar farin að bitna á fólki sem sækir um hæli á Íslandi. Dæmi eru um að barna­fjölskyldur séu sviptar dagpeningum sínum eftir að hafa dregið umsóknir um hæli til baka og að tilkynna þurfi félagsmála­yfirvöldum um útlendinga í neyð. Þá hafa hælis­leitendur sem dveljast á Airport Inn í Reykja­nesbæ ekki fengið strætó­miða frá þjónusta­aðila eftir að almennings­samgöngur í Reykja­nesbæ hættu að vera gjald­frjálsar nú um áramót. Gistiheimilið er staðsett í jaðri Ásbrúar, langt frá næstu matvöru­verslun.

Þann 30. ágúst 2017 síðastliðinn setti Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra reglugerð sem svipti útlendinga réttinum til framfærslu­fjár eftir að hælis­umsóknum þeirra er synjað og meðan þeir bíða eftir að vera sendir úr landi. Í reglu­gerðinni felst líka að ef hælis­leitandi er frá ríki sem er á lista yfir örugg uppruna­ríki og umsókn er metin „bersýni­lega tilhæfu­laus“ getur Útlendinga­stofnun fellt niður alla þjónustu við viðkomandi eftir að framkvæmdarhæf ákvörðun um synjun umsóknar liggur fyrir. 

Rauði krossinn gagnrýndi reglu­gerðina harðlega þegar Stundin leitaði viðbragða síðasta sumar. Bent var á að nýju reglurnar gætu orðið til þess að hælis­leitendur lentu milli steins og sleggju, án atvinnu­réttinda og framfærslu­fjár, jafnvel vikum saman meðan þeir biðu eftir að vera sendir úr landi. Alþingi aðhafðist ekkert, hvorki þáverandi samstarfs­flokkar Sjálfstæðis­flokksins í ríkis­stjórn né þáverandi stjórnar­andstöðu­flokkar.

Brynhildur Bolla­dóttir, upplýsinga­fulltrúi Rauða krossins, segir að reglu­gerðin sé þegar farin að hafa áhrif á líf fjöl­skyldna sem sækja um hæli á Íslandi. Hún bendir á að svo virðist sem Útlendinga­stofnun hafi ekki komið sér upp neinum verklags­reglum við framkvæmd á ýmsum þáttum reglu­gerðarinnar. Þetta bjóði hættunni heim um handahófs­kennda meðferð. Óljóst sé hvernig fólki er sagt frá afleiðingum þess þegar reglurnar eru brotnar og hvernig gætt er að andmæla­rétti.

Bryn­hildur Bolla­dóttirupp­lýs­inga­full­trúi Rauða kross­ins

„Til dæmis hafa umsækjendur á Airport Inn í Reykja­nesbæ ekki fengið strætó­miða eftir að samgöngur í Reykja­nesbæ hættu að vera gjald­frjálsar nú um áramót. Airport Inn er staðsett í jaðri Ásbrúar, langt frá næstu matvöru­verslun,“ segir Brynhildur. Hún nefnir annað dæmi: „Fólk með börn sem höfðu dregið umsókn til baka sjálf­viljug var svipt dagpeningum sínum. Öll þjónusta féll niður eftir 3 daga. Þau fengu áfram að vera í húsnæðinu, en á meðan þau biðu eftir flugi kláruðust peningarnir.“ Fyrir vikið þurfti að tilkynna félagsmála­yfirvöldum um útlendinga í neyð og fjöl­skyldan leitaði ásjár hjá öðrum stofnunum hins opinbera. „Það er brýnt að reglur séu skýrar og við séum ekki að færa fólk á milli ábyrgðar ólíkra ráðuneyta með tilheyrandi vinnu og kostnaði fyrir íslenska ríkið og með tilheyrandi óþægindum sem það hefur í för með sér fyrir fólkið,“ segir Brynhildur.

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttirfor­maður þing­flokks Vinstri grænna

Stundin spurði Bjarkeyju Olsen Gunnars­dóttur, þing­flokks­formann Vinstri grænna, hvort þing­flokkurinn hygðist beita sér fyrir endur­skoðun eða niður­fellingu reglu­gerðarinnar. „Við höfum ekki rætt það neitt sérstak­lega og ég get ekki talað fyrir hönd þing­flokksins hvað þetta varðar,“ segir hún. „Hins vegar er þetta eitt af því sem mun væntanlega koma upp í vinnu við endur­skoðun á útlendinga­lögum. Við munum tilnefna fólk í þá vinnu og ég geri ráð fyrir að þetta komi upp þar eins og ýmislegt fleira sem þarf að endur­skoða.“

Athygli vakti skömmu fyrir jól þegar til stóð að hælis­leitendur fengju ekki jóla­uppbót í desember eins og áður hafði tíðkast. Fram kom að Útlendinga­stofnun hefði haft samráð við dómsmála-ráðuneytið og að ákvörðunin væri tekin á grund­velli reglu­gerðar Sigríðar Andersen dómsmála­ráðherra um útlendinga. Eftir að fluttar höfðu verið fréttir um málið ákvað ríkis­stjórnin að nota ráðstöfunarfé sitt til að greiða hælis­leitendum jóla­uppbót. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár