Mynd: Heiða Helgadóttir

Keypti brúðarkjól og bað Guð um mann

Á meðan Svan­hildur Hákon­ar­dóttir bjó í Kvenna­at­hvarf­inu tók hún trú á Guð. Seinna keypti hún brúð­ar­kjól í fjár­söfnun fyrir trú­ar­lega útvarps­stöð og bað Guð að senda sér mann, svo hún gæti notað kjól­inn. Hún skráði sig á stefnu­móta­síður en var við það að gef­ast upp á þeim þegar hún kynnt­ist Banda­ríkja­mann­inum Anthony Bryant, sem hún hitti í fyrsta sinn í haust en gift­ist skömmu fyrir ára­mót.

Í lok ágúst flaug Svan­hildur Hákon­ar­dóttir til Banda­ríkj­anna. Hún var ein á ferð en ætl­aði sér að hitta mann, sem hún hafði aldrei séð áður en kynnt­ist á net­inu og leist vel á. Á flug­vell­inum beið hann eftir henni, Anthony Bryant, með risa­stóran blóm­vönd. Móðir hans var með í för og mót­tök­urnar voru hlýjar. „Þetta var ótrú­lega ynd­is­leg stund. Hann tók utan um mig, rétti mér blóm­vönd­inn og sagði: „How wonderful to see you.““

Þessi maður er nú eig­in­maður Svan­hildar en þau gengu í hjóna­band skömmu fyrir ára­mótin. Hún er sann­færð um að þeirra hjóna bíði björt fram­tíð. „Ég er líka komin á þann stað að ég er til­búin að gefa meira af mér en ég gerði áður.“ Í hennar huga felst ástin í gagn­kvæmri virð­ingu. „Við getum verið ólíkir ein­stak­lingar og höfum rétt á því að vera eins og við erum. Það þarf að sam­þykkja mann­eskj­una eins og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár