Flokkur fólksins og Miðflokkurinn leggjast gegn hækkun fjármagnstekjuskatts

Full­trúar Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins í tveimur fasta­nefndum Alþingis leggj­ast gegn hækkun fjár­magnstekju­skatts en Viðreisn vill að skatta­hækk­un­inni verði frestað.

Flokkur fólksins og Miðflokkurinn leggjast gegn hækkun fjármagnstekjuskatts
Ólafur og Sig­mundur Bæði Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Flokks fólks­ins, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, eru and­vígir því að skattur af fjár­magnstekjum, eins og arð­greiðslum og leigu­tekjum, verði hækk­aður. Mynd: Alþingi

Full­trúar Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins í fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis leggj­ast gegn hækkun fjár­magnstekju­skatts og full­trúi Við­reisnar vill að hækkun skatts­ins verði frestað.

Í fjár­laga­frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar er lagt til að skatt­ur­inn hækki úr 20 pró­sentum upp í 22 pró­sent um ára­mótin, en slík hækkun mun sam­tals skila 2,6 millj­örðum í rík­is­sjóð, þar af um 1,5 millj­örðum frá tekju­hæstu 10 pró­sentum lands­manna.

Til fjár­magnstekna ein­stak­linga telj­ast vaxta­tekjur, arður, sölu­hagn­aður og leigu­tekjur utan rekstrar, en fjár­magnstekjur eru skatt­lagðar mun minna en almennar launa­tekjur á Íslandi og jafn­framt miklu minna en tíðkast í flestum ríkjum OECD.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og full­trúi flokks­ins í efna­hags- og við­skipta­nefnd, telur að ef mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar sé að jafna skatt­byrði óháð upp­runa tekna sé rétt­ara að lækka fjár­magnstekju­skatt fremur en að hækka hann.

Réttara að lækka skattinn

„Þeir sem hafa lifi­brauð af fjár­magnstekjum greiða ekki aðeins fjár­magnstekju­skatt. Sá sem greiðir sér laun af hagn­aði eigin fyr­ir­tækis, svo sem iðn­að­ar­maður með fyr­ir­tæki utan um eigin rekstur, greiðir fyrst 20% tekju­skatt lög­að­ila og síðan 20% fjár­magnstekju­skatt ofan á það, á arð­greiðslur til eig­anda. Heild­ar­skatt­hlut­fallið verður því 36%. Hækkun fjár­magnstekju­skatts upp í 22% þýðir að þetta hlut­fall verður 37,6%,“ segir Sig­mundur í nefnd­ar­á­liti sínu um band­orm­inn svo­kall­aða, frum­varp til laga um breyt­ingu á ýmsum lögum vegna fjár­laga fyrir árið 2018.

Sig­mundur tekur dæmi af eldri borg­ara sem lifir af vöxt­unum á 100 millj­óna króna eign sinni.

„Í til­viki eldri borg­ara sem lifir á ævisparn­aði fer end­an­legt skatt­hlut­fall eftir sam­spili vaxta og verð­bólgu og raun­veru­legt skatt­hlut­fall getur hæg­lega farið yfir 50%. Sá sem á 100 millj. kr. sparifé á 5% vöxtum í 3% verð­bólgu hefur 2 millj. kr. í tekjur af höf­uð­stólnum þar sem 3 millj. kr. fara í að við­halda virði höf­uð­stóls­ins vegna verð­bólgu. Við­kom­andi greiðir hins vegar 20% fjár­magnstekju­skatt af 5 millj. kr., sem gerir 1 millj. kr. eða 50% af raun­tekjum við­kom­andi. Væri mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar raun­veru­lega að jafna skatt­byrði óháð upp­runa tekna þyrfti að lækka, en ekki hækka, fjár­magnstekju­skatt.“

„Flokkur fólksins andmælir hækkun fjármagnstekjuskatts“

Ólafur Ísleifs­son, full­trúi Flokks fólks­ins í fjár­laga­nefnd, leggst einnig gegn hækkun skatts­ins, meðal ann­ars á þeim grund­velli að hann bitni á eldra fólki sem vill leigja út íbúð­ar­hús­næði.

„Hækkun fjár­magnstekju­skatts snertir illa það fólk sem hefur fjár­magnstekjur t.d. af leigu hús­næðis, auk þess sem slíkar tekjur koma til skerð­ingar á líf­eyri. Núver­andi reglur sem snúa að leigu­tekjum, hvernig þær skuli metnar og áhrif þeirra á skerð­ingar líf­eyris, gera það að verkum að mjög óhag­stætt er fyrir líf­eyr­is­þega að leigja út íbúð. Bent er á þetta atriði í umsögn Öryrkja­banda­lags Íslands um fjár­laga­frum­varpið. Furðu sætir að rík­is­stjórn­ar­meiri­hlut­inn vilji með þessum hætti leggja stein í götu fólks sem bæði hefði vilja og getu til að leigja út íbúð­ar­hús­næði á tímum þegar skortur er á slíku,“ skrifar Ólafur í nefnd­ar­á­liti sínu. „Svipað má segja um sölu­hagnað eigna, svo sem sum­ar­húsa, sem og verð­bætur. Hvort tveggja kemur til skerð­ingar líf­eyris. Flokkur fólks­ins and­mælir hækkun fjár­magnstekju­skatts sem leggst þungt á eldri borg­ara og styður það að frí­tekju­mark vegna fjár­magnstekna verði hækkað. Þetta við­mið hefur ekki breyst frá 2009. Leigu­tekjur af einni íbúð ættu að vera und­an­þegnar fjár­magnstekju­skatti eins og Öryrkja­banda­lag Íslands hefur lagt áherslu á.“

Viðreisn vill fresta hækkuninni

Þor­steinn Víglunds­son, full­trúi Við­reisnar í efna­hags- og við­skipta­nefnd, telur að tíðar og fyr­ir­vara­litlar breyt­ingar á skatt­kerf­inu hafi lengi verið vanda­mál hér á landi.

Hann bendir á að ef rík­is­stjórnin hygg­ist breyta skatt­stofni fjár­magnstekju­skatts með þeim hætti að horft verði til skatt­lagn­ingar raun­vaxta væri verið að „flækja fjár­magnstekju­skatts­kerfið veru­lega og í raun end­ur­vekja verð­bólgu­reikn­ings­skil hvað þennan skatt­stofn varðar“. Þor­steinn telur að ef til vill væri nær að hofa til heim­ilda ein­stak­linga til að draga frá vaxta­gjöld, t.d. vegna hús­næð­is­lána, fremur en að flækja skatt­kerfið með skatt­lagn­ingu raun­á­vöxt­unar.

„Í ljósi áforma um end­ur­skoðun gjald­stofns­ins leggur 4. minni hluti til að hækkun fjár­magnstekju­skatts verði slegið á frest þar til nið­ur­staða end­ur­skoð­unar á gjald­stofni liggur fyrir. Standi áform um hækkun fjár­magnstekju­skatts óbreytt styður 4. minni hluti til­lögu meiri hlut­ans um hækkun frí­tekju­marks fjár­magnstekna úr 125 þús. kr. í 150 þús. kr,“ skrifar Þor­steinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár