Konur í hugbúnaðar- og tæknigeiranum greina frá áreitni og mismunun í starfi

„Við krefj­umst þess að fá að vinna vinn­una okkar án áreitni, ofbeldis eða mis­mun­unar,“ segir í yfir­lýs­ingu frá konum í hug­bún­aðar- og tækni­geir­anum. Hér eru sögur úr íslenskum veru­leika þess­ara kvenna.

Konur í hugbúnaðar- og tæknigeiranum greina frá áreitni og mismunun í starfi

Konur í hug­bún­aðar- og tækni­geir­anum lýsa kyn­ferð­is­legri áreitni og kyn­bundnu mis­rétti í sög­unum sem hér fylgja. Þær krefj­ast þess að sam­verka­menn þeirra taki ábyrgð á að upp­ræta vanda­málið og að við­eig­andi yfir­völd, stétt­ar­fé­lög og fyr­ir­tæki í hug­bún­aðar-, vef- og tækni-iðn­aði taki af festu á mál­inu og komi sér upp verk­ferlum og við­bragðs­á­ætlun gegn kyn­bundnu áreiti. „Kyn­bundið ofbeldi, áreitni og mis­munun á ekki að líð­ast, hvorki á vinnu­stöðum né ann­ar­staðar i sam­fé­lag­inu. Látum með­fylgj­andi frá­sagnir tæknikvenna af kyn­ferð­is­áreitni og kyn­bund­inni mis­munun í tækni-, upp­lýs­inga- og hug­bún­að­ar­iðn­aði vera þær síð­ustu,“ segir í yfir­lýs­ingu frá kon­unum. 

Yfirlýsing kvenna hugbúnaðar- og tæknigeiranum í heild:

Kyn­ferð­is­of­beldi, áreitni og kyn­bundin mis­munun á sér stað í hug­bún­aðar- og tækni­geir­anum, rétt eins og ann­ar­staðar í sam­fé­lag­inu. 

Óþarfi er að taka fram að ekki ger­ast allir karlar sekir um áreitni eða mis­munun – en hins vegar verða allt of margar konur fyrir því á starfs­ferli sínum og það er alger­lega óásætt­an­legt. 

Kyn­bundin mis­munun birt­ist með ýmsum hætti; allt frá nið­ur­lægj­andi athuga­semdum um útlit eða getu sam­starfs­kvenna og óvið­eig­andi brand­ara yfir í kyn­ferð­is­lega áreitni. Það er ólíð­andi að ekki sé tekið á umkvört­unum ef sá sem áreitir er met­inn „of verð­mætur“. Þeir sem gera öðrum óbæri­legt að sinna sínu starfi, eru ekki og geta aldrei verið, verð­mæt­ari en starfsand­inn og fyr­ir­tækið. Slíkt verð­mæta­mat og vinnu­brögð þarf að upp­ræta.

Við krefj­umst þess að allir sam­verka­menn okkar taki ábyrgð á að upp­ræta vanda­málið; að við­eig­andi yfir­völd, stétt­ar­fé­lög og fyr­ir­tæki í hug­bún­aðar-, vef- og tækni­iðn­aði taki af festu á mál­inu og komi sér upp verk­ferlum og við­bragðs­á­ætlun gegn kyn­bundnu áreiti. Kyn­bundið ofbeldi, áreitni og mis­munun á ekki að líð­ast, hvorki á vinnu­stöðum né ann­ar­staðar i sam­fé­lag­inu. Látum með­fylgj­andi frá­sagnir tæknikvenna af kyn­ferð­is­áreitni og kyn­bund­inni mis­munun í tækni-, upp­lýs­inga- og hug­bún­að­ar­iðn­aði vera þær síð­ustu.

Við förum fram á fræðslu fyrir starfs­fólk á birt­ing­ar­myndum kyn­ferð­is­legrar áreitni og kyn­bund­innar mis­mun­unar, og á hvernig fyr­ir­tækið muni taka á slíku ef upp kemur. Við áréttum mik­il­vægi þess að fyr­ir­tæki og starfs­fólk taki umræð­una og setji sér saman siða­reglur, líkt og tíðkast í erlendum stór­fyr­ir­tækjum, í fjöl­miðlum og stjórn­málum, þar sem grunn­gildi í rekstri og sam­skiptum eru áréttuð, und­ir­rituð og yfir­farin reglu­lega.

Við eigum ekki að þurfa að þegja lengur eða leiða ástandið hjá okkur. 

Við verð­skuldum jafn­rétti, að okkur sé trúað og sýndur stuðn­ingur. Fyrst og fremst á mis­rétt­inu að linna. Við krefj­umst þess að fá að vinna vinn­una okkar án áreitni, ofbeldis eða mis­mun­unar. 

Við stöndum saman og höfum hátt. #metoo

Undir þessa yfir­lýs­ingu rita hátt í 300 konur í hug­bún­aðar- og tækni­iðn­aði á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

#metoo frásagnir

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár