Sam­held­inn hópur Gylfi, Kjartan og Garðar láta fara vel um sig í brotnum tungu­sófa sem stendur á tjald­svæð­inu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Reykjavík 104,5: Íslenska flóttafólkið í Laugardalnum

Tjald­búarnir í Laugardal standa saman í barátt­unni fyrir mann­sæmandi lífi. Einn flutti í tjald eftir hjarta­áfall, annar skildi við konuna, þriðji valdi hundinn fram yfir herbergið og flutti í jeppann sinn, fjórði lenti í slysi og missti húsið á nauðungar­uppboði, enn önnur vék fyrir fjöl­skyldu úr íbúð og loks eru það þeir sem hrífast einfald­lega af þessu nýja samfélagi íslenskra flótta­manna í hjarta höfuð­borgarinnar.

Á tjald­svæðinu í Laugardal hefur myndast nokkuð fjölmennt samfélag. Flestir sem dvelja í Laugar­dalnum gera það af algjörri neyð, en nokkrir til þess að spara sér aurinn. Svæðið er heldur hrörlegt að sjá þegar blaðamann og ljós­myndara Stundarinnar ber að garði. Eftir langa kuldatíð er komin hláka og glerhálka hefur myndast í kringum húsbílana. Íbúarnir hafa beðið óþreyju­fullir eftir sandi, enda margir flogið á hausinn, en nú virðist náttúran ætla að leysa málið. Íbúar tjald­svæðisins í Laugardal vilja að svæðið fái póst­númerið 104,5, þar sem það liggur mitt á milli hverfa 104 og 105. Þá væri kannski hægt að koma upp póstkassa.

Salernis­aðstöðunni á tjald­svæðinu var lokað í haust og verða íbúar því að banka upp á hjá farfugla­heimilinu í næstu götu til þess að komast á salerni eða í sturtu. „Ef manni verður brátt í brók, til dæmis hérna inni, þá þarf maður að hlaupa alla leið hérna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár