Rektor vill reka prófessor í kjölfar ásakana um skoðanakúgun

Anna Guðrún Þór­halls­dóttir, pró­fessor við Land­bún­að­ar­há­skól­ann til 25 ára, fór á svig við siða­reglur skól­ans að mati siða­nefndar þegar hún gagn­rýndi sam­starfs­menn harð­lega í tölvu­pósti. Rektor, settur til eins árs án þess að hafa und­ir­geng­ist form­legt hæfn­is­mat, til­kynni Önnu í síð­ustu viku að hann hefði í hyggju að segja henni upp störfum.

Rektor vill reka prófessor í kjölfar ásakana um skoðanakúgun

Sæmundur Sveins­son, settur rektor við Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands, til­kynnti Önnu Guðrúnu Þór­halls­dóttur, pró­fessor við skól­ann, í síð­ustu viku að hann hefði í hyggju að segja henni upp störfum. Anna hafði ekki fengið áminn­ingu og hefur gegnt pró­fess­ors­stöðu í 25 ár.

Ástæða upp­sagn­ar­innar er tölvu­póstur hennar til sam­starfs­manna þar sem hún gagn­rýndi hvernig staðið var að ráð­stefnu um land­græðslu og lofts­lags­mál í Hörpu síð­asta vor. Komst siða­nefnd skól­ans að þeirri nið­ur­stöðu að til­tekin ummæli í tölvu­póst­inum fælu í sér ómak­legar aðdrótt­anir og brot á siða­reglum skól­ans. Sæmundur, sem nú er rektor, sat í und­ir­bún­ings­nefnd fyrir ráð­stefn­una sem Anna Guðrún gagn­rýndi og kom að skipu­lagn­ingu hennar. 

Upp­haf­lega stóð til að ad hoc-rektor yrði falið að taka ákvarð­anir um mál Önnu Guðrúnar og var mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið haft með í ráðum um það. Svo virð­ist sem horfið hafi verið frá þessu, enda til­kynnti Sæmundur Önnu í síð­ustu viku að til stæði að segja henni upp og að hún fengi 14 daga frest til að neyta and­mæla­réttar síns.

Aðspurður um málið seg­ist Sæmundur telja rétt staðið að því þrátt fyrir að Anna hafi ekki fengið áminn­ingu; um sé að ræða eðli­leg og lög­mæt við­brögð við áliti siða­nefndar en ekki hafi verið tekin end­an­leg ákvörðun um upp­sögn Önnu.

Kvartað til umboðsmanns vegna ráðningarferlis

Kristján Þór Júl­í­us­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, setti Sæ­mund Sveins­son tíma­bundið í stöðu rekt­ors þann 1. októ­ber. Áður hafði starfið verið aug­lýst og þrír umsækj­endur verið metnir hæfir að því er DV greindi frá í byrjun mán­aðar. Aðeins einn umsækj­andi var tal­inn búa yfir nægri stjórn­un­ar­reynslu en hann reynd­ist ekki geta tekið við starf­inu.

Sigríður Hall­gríms­dóttirfull­trúi ráð­herra í háskóla­ráði LBHÍ

Háskóla­ráð Land­bún­að­ar­há­skól­ans brást við þessu með því að útbúa lista í sam­starfi við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið yfir hugs­an­leg rekt­orsefni. Var þá stefnt að því að fá ein­hvern sem væri ótengdur ýmsum ágrein­ings­málum sem höfðu skekið skól­ann mán­uð­ina og árin á undan. 

Þann 7. sept­em­ber síð­ast­lið­inn stakk full­trúi ráð­herra í háskóla­ráð­inu, Sigríður Hall­gríms­dóttir – fyrr­ver­andi aðstoð­ar­kona Illuga Gunn­ars­sonar, betur þekkt sem pistla­höf­und­ur­inn Sirrý – upp á því að Sæmundur Sveins­son fengi stöð­una.

Háskóla­ráð féllst á til­lög­una og var Sæmundur settur rektor þann 1. októ­ber. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur verið kvartað til umboðs­manns Alþingis vegna ráðn­ing­ar­ferl­is­ins. 

Sakaði samstarfsmenn um skoðanakúgun

Í bréf­inu sem Anna sendi sam­starfs­mönnum sínum þann 10. maí síð­ast­lið­inn gagn­rýndi hún harð­lega fyr­ir­komu­lag og efn­is­val á ráð­stefnu Land­bún­að­ar­há­skól­ans í Hörpu um land­notkun og lofts­lags­mál. Hún sagði ráð­stefn­una hafa verið und­ir­búna og keyrða fram af „til­teknum hópi innan háskól­ans“ sem hefði lít­inn áhuga á gagn­rýn­inni umræðu og vildi úti­loka skoð­anir og nið­ur­stöður rann­sókna sem væru á skjön við þeirra eigin. 

„Stofnun sem kallar sig háskóla ber skylda til að halda á lofti því nýjasta sem kemur fram í rann­sóknum og ber að halda á lofti gagn­rýnni hugsun. Síðustu ár hefur æ meira borið á því innan LbhÍ að til­teknar skoð­anir skuli úti­loka og þeir sem þær hafa eru snið­gengnir á þann hátt að helst má líkja við ein­elti. Þetta hefur verið gert þrátt fyrir að æ fleiri rann­sóknir sýni að hinar „réttu“ skoð­anir þarfn­ist veru­legrar end­ur­skoð­unar,“ segir meðal ann­ars í tölvu­pósti Önnu til sam­starfs­manna sinna „Háskóli sem er rek­inn fyrir opin­bert fé og hefur í frammi slíka skoð­ana­kúgun, rit­skoðun og fram­komu við eigin vís­inda­menn þarfn­ast veru­legrar skoð­unar.“

Eftir að hún sendi bréfið var hún kærð til siða­nefndar háskól­ans. Siða­nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu þann 9. októ­ber síð­ast­lið­inn að með tölvu­póst­inum og til­teknum ummælum þar hefði Anna brotið gegn siða­reglum. Hún hefði farið út fyrir mörk þess sem talist gæti mál­efna­leg gagn­rýni og vegið ómak­lega að heiðri starfs­manna skól­ans með full­yrð­ingum sem ekki hefði verið sýnt fram á að ættu við rök að styðj­ast. 

Þann 14. októ­ber sendi Anna öllum starfs­mönnum skól­ans tölvu­póst, dró fyrri ummæli sín til baka og harm­aði þau, sagði þau van­hugsuð og úr lausu lofti gripin. Stundin hafði sam­band við Önnu sem vill ekki vilja tjá sig um málin í fjöl­miðlum.

Engin endanleg ákvörðun verið tekin

Sæmundur segir í sam­tali við Stundina að hann vilji ekki reka mál er varða ein­staka starfs­menn í fjöl­miðlum. Hann stað­festir að pró­fessor við skól­ann hafi fengið bréf um fyr­ir­hug­aða upp­sögn en segir þó enga ákvörðun hafa verið tekna; það verði ekki gert fyrr en eftir að and­mæli hafi borist. 

Rektor segir bréfið hafa verið afhent pró­fess­ornum í sam­ráði við lög­fræð­ing og að hann telji að staðið hafi verið rétt að mál­inu, jafn­vel þótt við­brögð skól­ans við tölvu­pósti Önnu og nið­ur­stöðu siða­nefndar kunni að virð­ast hörð. 

Hann vísar til siða­reglna Land­bún­að­ar­há­skól­ans þar sem fram kemur að brot á siða­reglum varði áminn­ingu við fyrsta brot en geti einnig varðað brott­vísun eða starfs­missi ef um ítrekað eða alvar­legt brot sé að ræða sam­kvæmt reglu­gerð. 

Sagði vinnubrögðin hafa verið óásættanleg

Sama dag og Kristján Þór Júl­í­us­son ráð­herra setti Sæmund rektor var rit­gerð nem­anda sem Sæmundur leið­beindi, þar sem efni var notað í leyf­is­leysi og án heim­ilda­skrán­ingar, fjar­lægð af Skemm­unni. 

Jón Hall­steinn Hallsson, dós­ent í erfða­fræði við Land­bún­að­ar­há­skól­ann, var einn af höf­undum efn­is­ins. Atburða­rásin var með þeim hætti að Sæmundur, sem þá var verk­efna­ráð­inn starfs­maður í Land­bún­að­ar­há­skól­anum, sendi Jóni póst og fal­að­ist eftir vinnuplaggi sem var hluti af rann­sóknum á íslenskum bygg­kyn­bótum. Skjalið sýndi ætt­ar­tré íslenskra byggyrkja.

Jón varð við beiðni Sæmundar en brá í brún þegar þegar hann varð þess áskynja, ári síðar, að ætt­ar­tréð hafði verið birt án heim­ildar og án nokk­urra til­vís­ana í BS-rit­gerð nem­anda Sæmundar á Skemm­unni. „Ég sendi nem­and­anum póst og benti henni á að þessi vinnu­brögð væru óásætt­an­leg þar sem þetta væri birt án leyfis. Ég hafði þá rætt við tvo sam­starfs­menn mína sem einnig höfðu komið að því að setja saman þetta ætt­ar­tré og hefðu ef til vill getað gefið heim­ild fyrir notkun þess. Þeir stað­festu hins vegar að slíkt leyfi hefði ekki verið veitt,“ segir Jón í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. 

„Tilraun til þöggunar“

Hann seg­ist í kjöl­farið hafa haft sam­band við Sæmund sem hafi við­ur­kennt ábyrgð sína á notkun mynd­ar­innar. Sæmundur hafi óskað þess strax að samið yrði við Skemmuna um að fá að senda inn nýtt ein­tak af rit­gerð­inni án efn­is­ins sem hafði verið notað í leyf­is­leysi. Jón féllst á þetta en segir að eftir á að hyggja finn­ist honum við­brögð sín ekki hafa verið heppi­leg. 

Jón Hall­steinn Hallssondós­ent við Land­bún­að­ar­há­skól­ann

„Ég og sam­starfs­fé­lagar mínir sem að þessu komu ákváðum að vísa mál­inu ekki til siða­nefndar þegar upp komst um málið, þó svo að rit­stuldur sé almennt lit­inn alvar­legum augum í háskóla­sam­fé­lag­inu,“ segir hann. 

„Ég taldi þetta á sínum tíma ásætt­an­leg mála­lok, ekki síst í ljósi erf­iðra mála sem höfðu þá verið í gangi innan skól­ans og taldi ég að það yrði ekki á það bæt­andi að halda þessu máli áfram. Þetta er þó óheppi­legt, eftir á að hyggja, að því leyti að líta má á þessar mála­lyktir sem til­raun til þögg­unar innan skól­ans og ekki ljóst hvort eins yrði tekið á sam­bæri­legum málum ef þau kæmu upp gagn­vart öðrum nem­endum. Slíkt er auð­vitað óheppi­legt í akademísku starfi þar sem rit­stuldur eða óvar­leg með­ferð heim­ilda er litin horn­auga.“

„Líta má á þessar mála­lyktir sem til­raun til þögg­unar innan skól­ans og ekki ljóst hvort eins yrði tekið á sam­bæri­legum málum ef þau kæmu upp gagn­vart öðrum nem­endum“

Jón segir að í haust hafi verið haft sam­band við sig og sér bent á að myndin væri ennþá inni í rit­gerð­inni, aðeins falin með „hvítum kassa“.

„Þá var ég hvattur til að kæra málið til siða­nefndar en ég taldi mig eins og áður bund­inn af því lof­orði sem ég hafði gefið Sæmundi um að mál­inu væri lokið af minni hálfu ef ætt­ar­tréð yrði fjar­lægt úr rit­gerð­inni. Rit­gerðin var því nú síð­ast tekin af inter­net­inu sama dag og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra til­kynnti um skipun Sæmundar í emb­ætti rekt­ors,“ segir Jón. Stundin hefur skoðað rit­gerð­ina sem um ræðir og rætt við fólk sem stað­festir frá­sögn Jóns. 

Sæmundur stað­festir meg­in­at­riðin í frá­sögn Jóns og segir að um mis­tök hafi verið að ræða. Þau hafi ekki komið til tals þegar háskóla­ráð mælti með því að hann yrði settur rektor. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Háskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir tilboð ráðherra hafa gert erfiða fjárhagsstöðu skólans verri
FréttirHáskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir til­boð ráð­herra hafa gert erf­iða fjár­hags­stöðu skól­ans verri

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir að til­boð háskóla­ráð­herra til sjálf­stætt starf­andi háskóla vera umfangs­mikla stefnu­breyt­ingu í fjár­mögnun háskóla­kerf­is­ins. Ekkert sam­ráð hafi verið haft við stjórn­endur skól­ans en ljóst þykir að breyt­ingin muni að óbreyttu hafa nei­kvæð áhrif á fjár­hags­stöðu skól­ans sem sé nú þegar erfið. HÍ sé far­inn að hug­leiða að leggja niður náms­leiðir.
Viðmiðum alþjóðastofnana ekki fylgt í samningi háskólans og Útlendingastofnunar um aldursgreiningar
Fréttir

Viðmiðum alþjóða­stofn­ana ekki fylgt í samn­ingi háskól­ans og Útlend­inga­stofn­unar um ald­urs­grein­ingar

Háskóli Íslands hyggst festa í sessi umdeildar lík­ams­rann­sóknir á hæl­is­leit­endum sem stand­ast ekki kröfur Evr­ópu­ráðs­ins, Barna­rétt­ar­nefndar SÞ og UNICEF um þver­fag­legt mat á aldri og þroska. Tann­læknar munu fá 100 þús­und krónur fyrir hvern hæl­is­leit­anda sem þeir ald­urs­greina sam­kvæmt drögum að verk­samn­ingi sem Stundin hefur undir höndum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár