Ríkisstjórn Íslands fór fram á að Washington Post fjarlægði grein um Bjarna og föður hans

Almanna­tengsla­fyr­ir­tækið Burson Mar­steller starfar fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið og reynir að hafa áhrif á frétta­flutn­ing af mál­inu sem felldi rík­is­stjórn­ina.

Ríkisstjórn Íslands fór fram á að Washington Post fjarlægði grein um Bjarna og föður hans

„Ég skrifa ykkur fyrir hönd rík­is­stjórnar Íslands. Við förum fram á að greinin ‘Rík­is­stjórn Íslands féll vegna þess að faðir for­sæt­is­ráð­herra vildi að barn­a­níð­ingur yrði náð­aður. Hvað er í gangi?’ verði fjar­lægð vegna fjölda stað­reynda­villna og afbak­ana.“

Þannig hefst tölvu­póstur sem rit­stjórn­ar­skrif­stofu Washington Post, eins virtasta dag­blaðs heims, barst frá starfs­manni almanna­tengla­skrif­stof­unnar Burson Mar­steller þann 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Málið snýst um pistil eftir Janet Elise Johnson, pró­fessor í stjórn­mála­fræði og kvenna­fræðum við Brooklyn College, þar sem fjallað er um stjórn­mála­á­standið á Íslandi, stjórn­ar­slitin og það sem kallað hefur verið „barn­a­níð­inga­hneykslið“ í erlendum miðlum. 

Villan sem fór helst fyrir brjóstið á íslenskum stjórn­völdum er sú að í grein­inni var upp­haf­lega talað um „náðun“ (e. pardon) frekar en upp­reist æru (restored honour) og gefið í skyn að barn­a­níð­ingar hefðu fengið hreint saka­vott­orð frekar en „óflekkað mann­orð“. Þetta var lag­fært skömmu eftir að greinin birt­ist.

Stundin hafði sam­band við almanna­tengil­inn, sem sér­hæfir sig í krísu­stjórnun hjá Burson Mar­steller, og spurði hvort hún starf­aði fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið eða utan­rík­is­ráðu­neytið og í hverju vinnan fælist. Hún vildi ekki svara spurn­ingum blaða­manns í síma en bað um að blaða­maður sendi sér upp­lýs­ingar um sjálfan sig. 

Eftir að Stundin sendi henni tölvu­póst og spurði hvort hún hefði sent fleiri sam­bæri­leg skeyti til dag­blaða barst svar frá upp­lýs­inga­full­trúa utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Þar segir:

Íslensk stjórn­völd hafa notið ráð­gjafar almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­is­ins  Burson-Mar­steller er varða orð­spor Íslands, m.a. í tengslum við efna­hags­mál, sjáv­ar­út­vegs­mál, jafn­rétt­is­mál, ferða­mennsku ofl. eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum. Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur umsjón með þess­ari vinnu fyrir hönd stjórn­ar­ráðs­ins. Hluti starfs Burson-Mar­steller er að leið­rétta það sem rangt er farið með, eins og í þessu til­viki, þar sem rang­færslur sem varða upp­reist æru og íslenska stjórn­skipan birt­ust í einu virtasta dag­blaði heims. Rétt er að minna á að utan­rík­is­ráð­herra sagði frá því í íslenskum fjöl­miðlum fyrir tæpum hálfum mán­uði að utan­rík­is­ráðu­neytið ynni að því að leið­rétta rang­færslur tengdar mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár