Óskattlagðar vaxtagreiðslur Norðuráls úr landi tvöfalt hærri en hagnaður fyrirtækisins

Laga­setn­ingin til að sporna við skatta­hag­ræð­ingu álfyr­ir­tækj­anna á Íslandi mun ekki hafa mikil áhrif á Norðurál og Alcoa. Vaxta­greiðslur Norð­ur­áls frá Íslandi til eigin fyr­ir­tækis í Banda­ríkj­unum nema rúm­lega 84 millj­ónum, hærri upp­hæð en sam­bæri­legar greiðslur hjá Alcoa.

Óskattlagðar vaxtagreiðslur Norðuráls úr landi tvöfalt hærri en hagnaður fyrirtækisins
Áhrifa­lítil laga­setn­ing Laga­setn­ing síð­ustu rík­is­stjórnar, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks, hefur hvorki mikil áhrif á skatt­greiðslur Alcoa né Norð­ur­áls á Grund­ar­tanga.

Álfyr­ir­tækið Norðurál, sem rekur álverið á Grund­ar­tanga, hefur greitt rúm­lega 84 millj­arða króna í vexti, fjár­magns­kostnað til móð­ur­fé­lags síns í Banda­ríkj­unum á þeim tólf árum sem  fyr­ir­tækið hefur  verið starf­andi á Íslandi. Á sama tíma­bili, 2005 til 2016, nemur bók­færður hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins tæp­lega 36 millj­örðum króna. Þetta kemur fram við athugun Stund­ar­innar á árs­reikn­ingum Norð­ur­áls ehf.  á tíma­bil­inu en Norðurál skil­aði nýlega árs­reikn­ingi fyrir árið 2016. Þessar vaxta­greiðslur frá Íslandi og til tengds félags í Banda­ríkj­unum, Nordurall US LCC, eru óskatt­lagðar vaxta­greiðslur og þarf Norðurál því ekki að greiða af þeim neina skatta til íslenska rík­is­ins.  

Skattur af arði enginn út af vaxtagreiðslum

Stundin, og fleiri fjöl­miðlar, hafa oft áður fjallað um vaxta­greiðslur Norð­ur­áls úr landi en með þeim nær Norðurál að koma hagn­að­inum af rekstri álvers­ins úr landi með hag­stæðum hætti. Lánið við félag Norð­ur­áls í Banda­ríkj­unum stóð í rétt rúm­lega 640 millj­ónum doll­ara í lok árs 2016. Norðurál …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Álver

Alcoa: Lagasetningin hefði ekki haft nein áhrif á 6,2 milljarða vaxtagreiðslur 2014 og 2015
FréttirÁlver

Alcoa: Laga­setn­ingin hefði ekki haft nein áhrif á 6,2 millj­arða vaxta­greiðslur 2014 og 2015

Vaxt­greiðslur álfyr­ir­tæk­is­ins Alcoa hafa almennt verið undir þeim við­miðum sem kveðið er á um í nýjum lögum um tekju­skatt. Laga­breyt­ingin sem á að koma í veg fyrir skattaund­an­skot slíkra fyr­ir­tækja virð­ist því ekki hafa mikil áhrif. For­stjóri Alcoa segir að fyr­ir­tækið vinni að því að kanna áhrif laga­breyt­ing­ar­innar á starf­semi álfyr­ir­tæk­is­ins.
Óskattlagðar vaxtagreiðslur Alcoa úr álverinu nema 67 milljörðum króna
FréttirÁlver

Óskatt­lagðar vaxta­greiðslur Alcoa úr álver­inu nema 67 millj­örðum króna

Vaxta­greiðslur álvers­ins á Reyð­ar­firði til félags í eigu Alcoa í Lúx­em­borg eru rúm­lega tveimur millj­örðum króna hærri en bók­fært tap álvers­ins á Íslandi. Síðasta rík­is­stjórn breytti lögum um tekju­skatt til að koma í veg fyrir slíka skatta­snún­inga. Indriði Þor­láks­son segir að laga­breyt­ing­arnar séu ekki nægi­lega rót­tækar til að koma í veg fyrir skattaund­an­skot með lána­við­skiptum á milli tengdra félaga.
Stjórnendur álveranna væru lögbrjótar í Noregi
FréttirÁlver

Stjórn­endur álver­anna væru lög­brjótar í Noregi

Norsk meng­un­ar­lög­gjöf er með tals­vert öðru sniði en sú íslenska. Í henni eru heim­ildir fyrir því að refsa stjórn­endum fyr­ir­tækja sér­stak­lega, fremji þau ítrekað það sem kallað er „meng­un­ar­glæpi“. Reglu­legt eft­ir­lit fag­að­ila með vöktun álvera og hegn­ing fyrir brot á meng­un­ar­lögum, sem er við­tek­inn siður í Noregi, þekk­ist ekki á íslandi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár