Mynd: Daníel Starrason

Á engar minningar af lífinu fyrir ofbeldið

Sigríður Ingunn Helga­dóttir var aðeins barn að aldrei þegar hún var beitt kynferðis­ofbeldi og var síðan sagt að gleyma því sem gerðist. Ofbeldið mótaði allt hennar líf og hafði áhrif á samskipti hennar við annað fólk, heilsu og jafnvel uppeldi barnanna. Hún fann fyrir létti þegar hún sagði loksins frá og segir aldrei of seint að byrja að vinna úr áföllum.

„Af þeim örfáu gerendum er fá dóm er sumum veitt uppreist æru, en á meðan fá þolendur að þjást árum og jafnvel áratugum saman, oft án viðeigandi aðstoðar við að vinna úr áfallinu,“ segir Sigríður Ingunn Helga­dóttir, en hún var beitt kynferðis­legu ofbeldi af fjölskyldu­vini þegar hún var mjög ung að árum. Hún var komin á fimmtugsaldur þegar hún fór að vinna úr áfallinu sem hún hafði orðið fyrir í barnæsku, en líf hennar og líðan hefur alla tíð verið litað af ofbeldinu. 

„Ég geri mér ekki grein fyrir því nákvæmlega hversu gömul ég var, en ég var allavega það ung að ég vissi ekki hvað væri að gerast,“ byrjar Sigríður. „Ég á minningu þar sem ég sit úti í sandkassa að velta fyrir mér orði sem ég heyrði í útvarpinu og var að velta fyrir mér hvort þetta væri það sem þessi maður væri að gera mér. Eitthvað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár