Leigufélag með óþekktu eignarhaldi selur íbúðir sem lofaðar höfðu verið leigjendum

Ásbrú ehf. hætti við að leigja út íbúðir á gamla varn­ar­liðs­svæð­inu til að selja þær í stað­inn. Ein­hverjir af leigj­endum fengu aðrar íbúðir frá Ásbrú en aðrir ekki. Óljóst er hver á Ásbrú sem á 470 íbúðir á gamla varn­ar­liðs­svæð­inu sem keyptar voru af íslenska rík­inu í fyrra.

Leigufélag með óþekktu eignarhaldi selur íbúðir sem lofaðar höfðu verið leigjendum
Leigu­fé­laga­væð­ingin Á síð­ast­liðnum árum hefur það færst í vöxt á Íslandi að íbúð­ar­hús­næði sé í eigu stórra leigu­fé­laga en ekki ein­stak­linga og fjöl­skyldna. Þetta hefur til dæmis gerst á gamla varn­ar­liðs­svæð­inu þar sem fjár­festar eins og Ásbrú ehf. hafa getað keypt fast­eignir ódýrt og leigt þær svo til fólks.

Leigu­fé­lagið Ásbrú ehf. selur nú íbúðir á gamla varn­ar­liðs­svæð­inu sem félagið keypti af rík­is­fyr­ir­tæk­inu Kadeco sem til stóð að leigja fólki. Stofnað hefur verið sér­stakt fast­eigna­fé­lag vegna við­skipt­anna, 235 fast­eignir, og sendi fyr­ir­tækið frá sér frétta­til­kynn­ingu um sölu eign­anna í lok ágúst. Um er að ræða 32 íbúðir. Ásbrú ehf. keypti umræddar íbúðir og fleiri, sam­tals 470 tals­ins, af Kadeco undir lok árs í fyrra fyrir fimm millj­arða króna og voru við­skiptin að hluta til fjár­mögnuð með selj­enda­láni frá rík­is­fyr­ir­tæk­inu upp á 2,5 millj­arða króna. 

Íbúð­irnar sem um ræðir voru áður í eigu banda­ríska hers­ins sem gaf íslenska rík­inu þær þegar varn­ar­liðið kvaddi Ísland á síð­asta ára­tug. Síðan þá hefur ríkið haldið á eign­unum í gegnum Kadeco og hefur síð­ast­liðin ár selt megnið af þeim. 

Kannski seldar með „tíð og tíma“

Þegar íbúð­irnar voru keyptar stóð til að leigja þær út eftir end­ur­bætur á þeim en í stað þess hefur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Leigumarkaðurinn

Telja mikið eignarhald hagnaðardrifinna leigufélaga skýra skarpar verðhækkanir á Suðurnesjum
FréttirLeigumarkaðurinn

Telja mikið eign­ar­hald hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga skýra skarpar verð­hækk­anir á Suð­ur­nesjum

Leigu­verð heldur áfram að hækka víð­ast hvar á land­inu sam­kvæmt nýjasta mán­að­ar­riti Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unnar. Athygli vekur að verð fyrir leigu­í­búðir á Suð­ur­nesjum hefur hækkað óvenju hratt á síð­ustu sex mán­uðum. Telja skýrslu­höf­undar að það megi rekja til óvenju hás hlut­falls leigu­í­búða í eigu ein­stak­linga og hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga.
Óheyrilegar verðhækkanir á leigumarkaði: „Þeir eru eins og óðir hanar í mannaskít“
NeytendurLeigumarkaðurinn

Óheyri­legar verð­hækk­anir á leigu­mark­aði: „Þeir eru eins og óðir hanar í manna­skít“

Aug­lýs­ing sem birt­ist á fast­eigna­vefnum Igloo hefur vakið mikla athygli og umræðu. Þar er fjög­urra her­bergja íbúð í Reykja­vík aug­lýst til leigu fyrir 550.000 krónur á mán­uði. Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­anna, segir stöð­una vera grafal­var­lega. Hann segir mörg heim­ili á leigu­mark­aði búi í dag við grimmi­lega og kerf­is­bundna fjár­kúgun.
Staða fjölskyldna á leigumarkaði hríðversnar milli ára
FréttirLeigumarkaðurinn

Staða fjöl­skyldna á leigu­mark­aði hríð­versnar milli ára

Samkvæmt nið­ur­stöðum leigukönn­unar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar versn­aði samn­ingstaða leigj­enda gagn­vart leigu­sölum umtals­vert milli áranna 2022 og 2023. Könnunin bendir einnig þess að bæði hafi leigu­verð hækkað og fram­boð á hús­næði við hæfi dreg­ist saman milli ára. Þróunin leggst þyngst á fjöl­skyldur sem bjuggu við þrengri kost árið 2023 í sam­an­burði við árið 2022.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár