Norsk fyrirtæki eiga 84 prósent í íslensku fiskeldi

Norsk fyrirtæki eiga 84 prósent í íslensku fiskeldi, samkvæmt greiningu Stundarinnar. Þau færa út kvíarnar til Íslands vegna slæmra umhverfis­áhrifa af fisk­eldinu í Noregi. Stór norsk eldis­fyrirtæki sjá sjókvíaeldi á laxi ekki sem fram­tíðina í greininni.

Nær allt hlutaféð frá Noregi
Nær allt hluta­féð frá Noregi Nær allt hlutafé íslensku fyr­ir­tækj­anna sem stunda sjó­kvía­eldi á laxi er komið frá norskum lax­eld­is­fyr­ir­tækjum. Myndin sýnir lax­eldi í Berufirði, hjá Laxeldi Aust­fjarða, sem er í meiri­hluta­eigu norskra eld­is­fyr­ir­tækja.

Tæplega 11 milljarða króna hlutafé af rúmlega 13 milljarða króna hlutafé í fiskeldi á Íslandi er í eigu erlendra fyrir­tækja. Um er að ræða ríflega 84 prósent af öllu hlutafé tíu íslenskra fiskeldis­fyrirtækja. 

Að langmestu leyti er um að ræða hlutafé frá norskum laxeldis­fyrirtækjum sem fjárfest hafa í íslenskum laxeldis­fyrirtækjum sem stunda sjókvíaeldi, Arnarlaxi og Arctic fish ehf. á Vestfjörðum. Af 10.442 milljóna króna hlutafé þessara tveggja fyrir­tækja eru 10.296 milljónir í eigu erlendra aðila en einungis 146 milljónir í eigu íslenskra aðila. Þetta kemur fram við athugun Stundarinnar á hluta­fjáreign þeirra 10 fiskeldis­fyrirtækja sem starfs­hópur Þorgerðar Katrínar Gunnars­dóttur, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, fjallaði um í skýrslu sem hann skilaði af sér nú í ágúst. 

Auk þessara tveggja stóru og hluta­fjársterku laxeldis­fyrirtækja eru tvö önnur laxeldis­fyrirtæki sem sérhæfa sig í sjókvíaeldi á laxfiskum í rúmlegri meirihluta­eigu norskra laxeldis­fyrirtækja. Þetta eru Fiskeldi Aust­fjarða hf. og Laxar Fiskeldi hf. Eina fyrir­tækið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár