Móðir Birnu gagnrýnir efnistök fjölmiðla

„Sumar lýs­ingar eru þess eðlis að þær valda óbæri­legum sárs­auka, skapa hrylli­legar myndir í hug­skotum þeirra sem þjást mest, fjöl­skyld­unnar,“ skrifar Vigfús Bjarni Alberts­son sjúkra­húss­prestur, sem biðlar til fjöl­miðla að fara gæti­lega.

Móðir Birnu gagnrýnir efnistök fjölmiðla
Birna Brjáns­dóttir Rétt­ar­höld standa yfir vegna máls hennar.

Sig­ur­laug Hreins­dóttir, móðir Birnu Brjáns­dóttur, gagn­rýnir efn­is­tök fjöl­miðla í frétta­flutn­ingi af rétt­ar­höld­unum yfir Thomasi Möller Olsen sem staðið hafa yfir und­an­farna daga.

Dæmi eru um að graf­ískum lýs­ingum á morð­inu á Birnu hafi verið slegið upp í fyr­ir­sagnir. Þannig birt­ist til dæmis stór frétt með yfir­skrift­inni Birna fékk tvö högg eftir að henni byrj­aði að blæða á DV.is í gær. Á Vísi var það orða­lag notað í frétt að rétt­ar­hald­anna hefði verið beðið með eft­ir­vænt­ingu.

„Ég get ekki á mér setið. Fyrir hvern nákvæm­lega eru fjöl­miðlar að skrifa?“ skrifar móðir Birnu á Facebook-síðu sinni. Telur Sig­ur­laug að með nákvæmum og graf­ískum texta­lýs­ingum úr dóms­sal sé verið að hlut­gera dóttur hennar.

„Allir fjöl­miðlar hafa verið að runka sér í því að hlut­gera dóttur mína síð­ustu daga. Á Vísi var skrifað „það hafði verið beðið eftir þessum rétt­ar­höldum með eft­ir­vænt­ingu ...“ Hver beið með eft­ir­vænt­ingu? Er þetta hollt fyrir ein­hvern? Eru for­dæmi fyrir þessum fjöl­miðla­hryll­ingi í ein­hverju öðru landi?“

Vigfús Bjarni Alberts­son, sjúkra­húss­prestur, birti opna orð­send­ingu á Facebook í gær þar sem hann biðl­aði til fjöl­miðla fyrir hönd for­eldra Birnu:

Aðstoð við for­eldra í sorg. Ég skrifa þetta að beiðni for­eldra Birnu Brjáns­dóttur. Sumir fjöl­miðlar hafa verið mjög nákvæmir í lýs­ingum sínum á atburð­inum hræði­lega. Sumar lýs­ingar eru þess eðlis að þær valda óbæri­legum sárs­auka, skapa hrylli­legar myndir í hug­skotum þeirra sem þjást mest, fjöl­skyld­unnar. Það er ósk okkar að fjöl­miðlar fari gæti­lega um leið og hugur þjóð­ar­innar er með fjöl­skyld­unni. Þið megið gjarnan deila þessu ef þið eruð sam­mála.

Þá birti Gylfi Þór Þor­steins­son, sonur konu sem lést af áverkum eftir alvar­lega lík­ams­árás fyrir tutt­ugu árum síðan, færslu þar sem hann gagn­rýndi fjöl­miðlaum­fjöll­un­ina um rétt­ar­höldin yfir Birnu:

Þessa dag­ana fara fram rétt­ar­höld sem setja nýtt við­mið í umfjöllun um morð­mál.

Viðmið sem mér líkar alls ekki við, fyrir um 20 árum síðan var móðir mín myrt, hún var barin til bana af bróður sínum. Það var mikil áfall, fyrir mig, föður minn og alla þá sem okkur þekktu, og já einnig fjöl­skyldu bróður hennar. Áfallinu lauk ekki við jarða­för, við gátum ekki litið svo á að nú væri ein­hverju ferli lokið, því við tóku rétt­ar­höld, fyrst fyrir hér­aðs­dóm og svo fyrir Hæsta­rétti. Ég treysti mér ekki til að vera við­staddur Hér­aðs­dóm, ástæðan var sú að þar yrði greina­góðar lýs­ingar á því hvernig bróðir mömmu fór með hana fram í and­látið. Ég þakka fyrir, að þótt umfjöllun hafi svo sann­ar­lega verið í fjöl­miðlum, þá voru greina -góðar lýs­ingar á höggum, blóð­slettum og hvernig síð­ustu stundir mömmu voru, ekki birtar í fjöl­miðlum.

Ég þekki það betur en margir, hve lestur, hlustun, áhorf eða smellir skipta fjöl­miðla máli. Vann við fjöl­miðla frá árinu 1991 til 2013, og meðal ann­ars, á meðan mál móður minnar kom upp. Ýmislegt birt­ist í þessum miðlum, sumt rétt annað ein­fald­lega rangt og ómögu­legt var fyrir okkur að koma réttum upp­lýs­ingum til skila, það skipti okkur máli, því þessar röngu upp­lýs­ingar særðu líka.

Ég á 3 börn, ein­hvern tíma munu þau lesa dóms­gögnin og sjá hvað lífið getur verið grimmt, en þá munu þau gera það á sínum for­sendum. Ekki for­sendum lest­urs, hlust­unar, áhorfs eða smella. Ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta er eins og ég kom inn á í upp­hafi, rétt­ar­höldin vegna máls Birnu. Er það í almanna­þágu að við þurfum graf­ískar lýs­ingar á áverkum? Hjálpar þetta þjóð­inni að jafna sig á þessu hræði­lega máli? Aldrei fyrr hefur morð­mál á Íslandi fengið eins graf­íska lýs­ingu og nú, og ég vona að fjöl­miðlar átti sig á að frétta­gildið getur verð alveg það sama ef við sleppum því.

Nú er þessu ranti mínu lokið og ég mun eflaust halda áfram næstu daga að sjá spaugu­legu hlið­ina á líf­inu, en ég veit af eigin reynslu að ætt­ingar og vinir Birnu, munu ekki geta það. Ekki strax og allra síst á meðan þau þurfa að hlustu, horfa eða lesa um þessi síð­ustu and­ar­tök stelpunar sem þau elsk­uðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvarf Birnu Brjánsdóttur

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sakbornings
Fréttir

Lögmaður Nikolaj skilur ekki af hverju hann hefur enn stöðu sak­born­ings

Unn­steinn Örn Elvars­son, lög­fræð­ingur Nikolaj Olsen, segir að skjól­stæð­ingur sinn hafi verið him­in­lif­andi þegar hann fékk þær fréttir að hann yrði lát­inn laus úr gæslu­varð­haldi en ein­angr­unin hefur reynt veru­lega á hann. Ekki verður farið fram á far­bann yfir honum en hann hefur verið stað­fastur í frá­sögn sinni, lýst yfir sak­leysi og reynt að upp­lýsa málið eftir bestu getu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár