Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi

Íslendingar fylgdust stoltir með Hildi Guðnadóttur raða inn verðlaunum fyrir tónlist: Grammy-verðlaun, Golden Globe og Óskarinn. Fleiri íslenskir listamenn, sem hafa fengið tækifæri til þess að stunda tónlistarnám á uppvaxtarárunum, hafa náð langt á alþjóðavettvangi. 

Enda ætlar Reykjavíkurborg að „verða heimsþekkt menningarborg“, suðupottur menningar og lista, líkt og fram kemur í menningarstefnu Reykjavíkurborgar. Þar er áhersla lögð á að listin sé frjáls og að styrkir borgarinnar stuðli að eflingu listgreina á þeirra eigin forsendum. Grundvallaratriði sé að „allir íbúar hafi jöfn tækifæri til þess að njóta lista, menningar og menningararfs bæði sem þátttakendur og neytendur. Enginn má vera útilokaður.“ 

Það kveður við sama tón í tónlistarstefnu borgarinnar: „Tónlistarborgin Reykjavík beitir sér fyrir því að efla Reykjavík sem tónlistarborg með því að skapa hagstæð skilyrði fyrir gróskumikið tónlistarlíf.“ 

Þrátt fyrir það lýsa skólastjórnendur og kennarar yfir auknum áhyggjum af þróun málefna í tónlistarmenntun á Íslandi. „Þróunin síðustu ár bendir til þess …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu