Snúningshurð stjórnmála og hagsmuna

Bjarni Bene­diktssson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefur störf hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins rúmu ári eftir að hann vék úr stjórn­málum. Pró­fessor segir það kallað „snún­ings­hurð“ þegar stjórn­mála­menn fara í stöður hjá hags­muna­vörðum eða starfs­menn hags­muna­sam­taka eru ráðnir inn í stjórn­kerfið. Þetta sé algengt á Íslandi en stjórn­mála­menn seg­ist oft eiga erfitt með að finna vinnu.

Snúningshurð stjórnmála og hagsmuna
Bjarni Bene­dikts­son Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fór úr við­skipta­líf­inu í ráð­herra­stól og mun nú sinna hags­muna­vörslu fyrir Samtök atvinnu­lífs­ins. Mynd: Golli

Bjarni Bene­dikts­son, lög­fræð­ingur, fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra, hefur verið ráð­inn sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA). Hlutverk hans verður að sinna hags­muna­gæslu fyrir sam­tökin, aðild­ar­fé­lög þeirra úr sjáv­ar­út­vegi, orku­geir­anum, fjár­mála­kerf­inu, iðn­aði, verslun og víðar, og þau yfir 2.000 fyr­ir­tæki sem eiga þar aðild. Standa þau að baki um 70% allra launa­greiðslna á almennum vinnu­mark­aði.

Það hefur verið þekkt – en umdeilt – bæði hér­lendis og erlendis að stjórn­mála­menn fái stöður hjá hags­muna­sam­tökum að stjórn­mála­ferli loknum en raunar var Bjarni virkur þátt­tak­andi í við­skipta­líf­inu fyrstu fimm ár stjórn­mála­fer­ils síns þó að umfang þátt­töku hans hafi ekki orðið ljóst fyrr en síðar.

Bjarni tekur við nýja starf­inu 1. mars næst­kom­andi en það var 6. jan­úar í fyrra sem hann til­kynnti skömmu eftir alþing­is­kosn­ingar að hann hygð­ist hætta á þingi og segja af sér for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknum. Flokk­ur­inn hafði þá hlotið sína verstu kosn­ingu frá upp­hafi og fékk í fyrsta sinn …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár