Þingmaður segir Ólaf Ragnar hafa gefið stefnu Viðreisnar falleinkunn

Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Mið­flokks­ins, segir að Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti lýð­veld­is­ins, hafi gefið utan­rík­is­stefnu Við­reisnar fall­ein­kunn. For­set­inn fyrr­ver­andi ráð­lagði í gær íslenskum stjórn­völdum að láta lítið fyrir sér fara meðan Banda­ríkin reyni að taka yfir Grænland og inn­lima það í sitt land­svæði.

Rétt væri að hlusta á leið­bein­ingar og ráð Ólafs Ragnars Gríms­sonar, fyrr­ver­andi for­seta, þegar kemur að sam­skiptum við Banda­ríkin og stjórn Donalds Trump for­seta. Þetta sagði Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Mið­flokks­ins, á Alþingi í dag, en hann sagði Ólaf Ragnar hafa gefið utan­rík­is­stefnu Við­reisnar fall­ein­kunn.

Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, þing­maður Sam­fylk­ingar, sagði hins vegar ómögu­legt að „strjúka hærum Banda­ríkja­for­seta rétt­sælis“ og þannig myndum við „gjald­fella orðið full­veldi“.

Vísaði Karl Gauti í ræðu sinni til við­tals við Ólaf Ragnar í Silfrinu á RÚV í gær­kvöldi og sér­stak­lega til þeirra spak­mæla sem hann lagði áherslu á. Annað þeirra var „allt kann sá sem bíða kann“ og hitt var „fæst orð bera minnsta ábyrgð“.

Eigum að hafa okkur hæg

Í við­tal­inu sem Karl Gauti vís­aði til sagði Ólafur Ragnar að Íslend­ingar ættu að láta lítið fyrir sér fara meðan Banda­ríkin reyndu að taka yfir Grænland og inn­lima það í sitt land­svæði. Karl Gauti sagði að ummæli Ólafs Ragnars væru ekki sögð að til­efn­is­lausu, „í ljósi þess að ýmis­legt hefur nýlega verið sagt ógæti­lega sem betur hefði verið látið ósagt.“

Ítrekaði hann að Banda­ríkin væru á meðal okkar nán­ustu vina og banda­lags­þjóða. Við ættum varnir lands­ins undir þeim.

„Ólafur taldi til að mynda ráð­legt að fyrir hvern fund í Brussel ættum við að sækja tvo slíka í Washington. Vita­skuld eru ummæli Trumps um Grænland frá­leit en stóru frétt­irnar eru þær að Ólafur Ragnar, sem er pró­fessor og fyrrum for­seti og hefur ára­tug­a­reynslu og víð­tæk sam­bönd, gaf utan­rík­is­stefnu Við­reisnar fall­ein­kunn í gær.“

„Er ekki rétt, frú for­seti, að Sam­fylk­ingin og Flokkur fólks­ins taki mið af ofan­greindum ráð­legg­ingum fyrrum for­seta lýð­veld­is­ins?“

Stefna á Evrópuatkvæðagreiðslu

Mið­flokk­ur­inn hefur verið sér­lega gagn­rýn­inn á stefnu Við­reisnar um að hefja aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið að nýju. Fékk flokk­ur­inn það í gegn í meiri­hluta­við­ræðum eftir síð­ustu kosn­ingar að haldin yrði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um hvort taka ætti upp við­ræður að nýju. Sú atkvæða­greiðsla á að fara fram ekki seinna en á næsta ári.

Þrýst hefur verið á að flýta þeirri atkvæða­greiðslu vegna stöð­unnar í heims­mál­unum. Þannig hefur Evr­ópu­hreyf­ingin nýlega sent frá sér ályktun – sem beint var til allra þing­manna – þar sem skorað er á stjórn­völd að flýta atkvæða­greiðsl­unni. 

„Það er nið­ur­staða hreyf­ing­ar­innar að hags­munum Íslands sé best borgið með því ganga til liðs við Evr­ópu­sam­bandið og vera þar í hópi líkt þenkj­andi, full­valda þjóða, m.a. þriggja ann­arra Norð­ur­landa. Íslenska þjóðin á að eiga síð­asta orðið og það er brýnt að hún fái að segja álit sitt sem fyrst,“ segir í álykt­un­inni. 

Stuðn­ingur við að aðild­ar­við­ræður verði teknar upp að nýju hefur auk­ist á und­an­förnu ári. Í könnun Maskínu sem gerð var í des­em­ber kom fram að 53 pró­sent vildu taka upp við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið að nýju en 47 pró­sent væru and­víg. 

Svarað af Sigmundi 

Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, þing­maður Sam­fylk­ingar, svar­aði Karli Gauta, án þess að ávarpa hann sér­stak­lega í umræð­unum, og sagði að reisa ætti fána Græn­lands í þing­sal og reisa hann hátt við hún í íslenskri umræðu. „Við þurfum að taka af allan vafa um að við stöndum með Græn­lend­ingum á kom­andi tímum. Orðið full­veldi og frjáls þjóð er í húfi,“ sagði hann.

Sig­mundur sagði að öllu væri snúið á hvolf varð­andi ásælni Banda­ríkja­for­seta gagn­vart Græn­landi. Engin væri ógnin af Rúss­landi og Kína við Grænland og þar hefði Trump-stjórnin bæði óheftan aðgang til að bæta við her­afla sinn og til að sækja í verð­mæta málma.

„Við þurfum að hafa í huga að ef við ætlum í mál­flutn­ingi okkar að strjúka hærum Banda­ríkja­for­seta rétt­sælis þá erum við að gjald­fella orðið full­veldi. Við erum að gjald­fella orðið frjáls þjóð. Við erum að gjald­fella orðið mann­rétt­indi. Við erum að gjald­fella flest, ef ekki öll, okkar gildi sem lýð­ræð­is­þjóð,“ sagði hann og hélt áfram:

„Við erum að hampa manni sem er til­bú­inn að fórna öllum þessum gildum sem við sem þing­heimur höfum trúað á, ég held allir hér inni, í allri okkar póli­tík.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár