Vill helst vera á Hrafnistu yfir hátíðarnar

Bryndís Sig­urð­ar­dóttir hefur búið á Hrafn­istu í Reykja­nesbæ í átta ár og ver aðfanga­dags­kvöldi með fjöl­skyldu­með­limum, en vill ann­ars vera heima yfir jóla­há­tíð­ina. Þar sé vel hugsað um heim­il­is­fólk. „Mér finnst ógur­lega gott að jólin séu lág­stemmd. Manni verður að líða vel.“

Vill helst vera á Hrafnistu yfir hátíðarnar

Það er þetta skamm­degi þegar sort­inn grúfir yfir norð­ur­hjar­anum meiri­hluta sól­ar­hrings­ins en þá skína jóla­ljósin einmitt svo skært. Um miðjan dag á Reykja­nes­braut­inni er þennan dag dimmt yfir og skýjað. Og það fer að koma myrkur. Bílljós og ein­staka þotur með skær ljós minna á þessi sömu jóla­ljós þegar nær dregur Reykja­nesbæ og alþjóða­flug­vell­inum. Þar eru sum húsin svo fal­lega skreytt í til­efni jóla­há­tíð­ar­innar að það er ævin­týra­legt.

Skammt frá Ytri-Njarð­vík­ur­kirkju, sem er eins og nútíma­lista­verk þar sem kross­inn ber við himin, er nútíma­leg bygg­ing. Hrafn­ista. Þangað er ferð­inni heitið til að taka við­tal við einn heim­il­is­mann­inn, meðal ann­ars um æsku­jólin og jólin þar.

Það virð­ist ríkja góður andi þar inni. Það er bjart og hlý­legt og ung kona með börn er á aðal­gang­inum. Hún hefur kannski verið að heim­sækja ömmu sína eða afa. Frænku eða frænda. Hver veit.

For­stöðu­maður heim­il­is­ins gengur með blaða­manni inn á einn …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár