Áhugi ungs fólks á mormónum jókst eftir raunveruleikaþættina

Ungir morm­ónar frá Banda­ríkj­unum lögðu líf sitt til hliðar til þess að boða fagn­að­ar­er­indið. Þeir höfðu ekk­ert um það að segja hvert þeir færu, en þakka fyrir að hafa farið til Íslands. „Íslend­ingar eru æðis­legir.“ Þrátt fyrir dvín­andi kirkju­sókn þjóð­ar­innar finna þeir fyrir auknum áhuga á meðal ungs fólks, en deila um áhrif vin­sælla sjón­varps­þátta þar á.

Áhugi ungs fólks á mormónum jókst eftir raunveruleikaþættina

„Við viljum kenna Íslend­ingum og hjálpa þeim að læra um Krist,“ segir hinn tví­tugi öld­ungur Owen Moyer, sem kemur frá Virg­in­íu­ríki. Með honum er Dylan Nehren, 19 ára gam­all drengur frá Salt Lake City í Utah-ríki í Banda­ríkj­unum, sem kom til lands­ins sem öld­ungur og er búinn að vera hér í rúmt ár. Fyrst á Akureyri en flutti til höf­uð­borg­ar­innar fyrir nokkrum mán­uðum. Honum líkar vel á Íslandi, enda mik­ill snjó­brettaunn­andi. 

Stjörnur mormóna

Kirkja Jesú Krists hinna síð­ari daga heilögu, sem er betur þekkt sem morm­óna­kirkjan, er alþjóð­leg kirkja sem á rætur sínar að rekja til Banda­ríkj­anna. Hún hefur verið mikið á milli tann­anna á fólki und­an­farin miss­eri en raun­veru­leika­þættir á borð við Secret lives of Mormon Wives hafa rutt trúnni fram á sjón­ar­sviðið. Stjörnur þátt­anna eru allt ungar mæður með stóran fylgj­enda­hóp á net­miðlum og eru núver­andi eða fyrrum með­limir kirkj­unnar.

„Ég elska …
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það er alveg ótrúlegt að það skuli vera til ungt fólk sem trúir að það sé til einhver guð. Ég hélt að unga fólkið okkar fengi betri fræðslu en þetta í skólakerfinu. Tilvist guðs stenst enga vísindalega skoðun. Það hafa aldrei verið til neinar sannanir fyrir tilvist guðs.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár