Bíla­stæði við Fjallsár­lón Greiddar eru þús­und krónur fyrir að stoppa hér. Mynd: Jón Trausti

Þetta bílastæði kostar þúsund krónur

Þau sem ekki greiða innan fjög­urra klukku­stunda eru rukkuð um 3.500 krónur í van­greiðslu­gjald.

Ferða­langar sem stöðva bif­reið á mal­arplani nærri Fjallsár­lóni og Fjallsjökli þurfa að greiða þús­und krónur í gegnum Parka-appið fyrir dvöl umfram 15 mín­útur. Engin aðstaða er þó á svæð­inu.

Þau sem ekki greiða innan fjög­urra klukku­stunda eiga von á að verð hækki í 4.500 krónur.

Bíla­stæðið lætur ekki mikið yfir sér. Samkvæmt eft­ir­grennslan Heim­ild­ar­innar er stæðið á vegum land­eig­enda að Kvískerjum, sem er austasti bær í Öræfum. 

Stæðið liggur skammt frá mörkum Vatna­jök­uls­þjóð­garðs. Handan Fjallsár frá gjald­skyldu­stæðum við Fjallsár­lón er stórt mal­arplan sem fellur innan Vatna­jök­uls­þjóð­garðs. Þar er jafn­framt veit­inga­staður, en til þess að nýta sal­ern­is­að­stöð­una þarf að hafa pantað borð eða greiða fyrir aðgang.

Bíla­stæðin við Fjallsár­lón eru einn af á fjórða tug staða á land­inu þar sem greiðslu- og eft­ir­lits­lausnir Parka hafa nýlega verið inn­leiddar til þess að rukka þar sem áður var hægt að stöðva og virða fyrir sér nátt­úr­una án …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gisli Helgason skrifaði
    Ef rétt ætti að vera þá ætti allur svona óþverraháttur að vera lögsóttur. Það er einstaklega moldbúa-legt að svona atferði og raunverulega þjófnaður fái að viðgangast. Að það sé ekki hægt að kæra svona. Við Íslendingar erum greinilega skítseiði og högum okkur eins þeir allra verstu annarstaðar. Það eru svona rugl dæmi komin upp út um allt, öll bílastæði komin með gildrur og önnur sem eru ekki nálægt aðstöðu eru lokuð vegna framkvæmda sem eru ekki raunverulegar eins og við Geysi. Það þarf að vera hægt að sekta svona framferði þannig að það taki all verulega í. Það þarf greinilega að skoða þessa Dýrlinga.
    2
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Hæstu lögleifðu dráttarvextir eru til og mér skilst landslög.... en þú getur veitt afslátt ef borgað er innan tíma. Vangreiðsluggjlad er ekki til því það bíður upp á vangreiðslugjald númer 2 og 3 og 4 og er almennt flokkað sem okur. Vekur furðu að seðlabankinn þegir þunnu hljóði yfir okri en ástæðan fyrir að það er staðreiðsluafsláttur er að hann er bara einu sinni. Tærir snillingar fóru í orðaleiki til að fara í kringum hæstu lögleiðfðu dráttarvextir og yfirvöld þegja þunnu hljóði yfir þessari lögleisu því þetta heitir á ensku racketering og er felonibrot.
    2
  • Stella Kristjánsdóttir skrifaði
    Það þarf að búa til reglur um hvað er sanngjarnt verð uppí kostað eigenda landareignanna. En ef ríkið sá um gerð bílastæðanna eiga landeigendur ekki að rukka uppí kostnað sem þeir greiddu ekki.
    3
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Skiljanlegt að eigendur bílastæða vilji rukka gjald fyrir aðstöðuna, en lágmark að unnt sé að borga á staðnum. Öll þessi öpp eru veruleg plága.
    2
    • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
      Þessi malarstæði með engri aðstöðu eru alltof dýr. Einhverjir landeigendur eru að mala gull með þessu.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár