Segir orka tvímælis ef Samstöðin er rekin fyrir fé ætlað stjórnmálastarfsemi

Haukur Arn­þórs­son stjórn­sýslu­fræð­ingur segir Sam­stöð­ina verða að ákveða hvort hún sé fjöl­mið­ill Sós­í­alista­flokks­ins, og geti þá notað fé frá opin­berum aðilum ætlað stjórn­mála­starf­semi, eða hvort hún sé almennur fjöl­mið­ill.

Segir orka tvímælis ef Samstöðin er rekin fyrir fé ætlað stjórnmálastarfsemi
Bol­holtið Aðal­fundur Sós­í­alista­flokks­ins var hald­inn á laug­ar­dag­inn í hús­næð­inu sem hann deilir með Sam­stöð­inni. Mynd: Golli

Stjórn­sýslu­fræð­ing­ur­inn Haukur Arn­þórs­son segir að það orki tví­mælis ef Sós­í­alista­flokk­ur­inn rekur Sam­stöð­ina fyrir styrkt­arfé frá ríki eða sveit­ar­fé­lögum sem ætlað sé til stjórn­mála­starf­semi. 

„Sam­stöðin verður að ákveða hvort hún er fjöl­mið­ill Sós­í­alista­flokks­ins og merkir efni sitt þannig og getur þá notað fé frá opin­berum aðilum sem ætlað er til stjórn­mála­starf­semi – eða hvort hún er almennur fjöl­mið­ill, en þá getur hún ekki notað fé af þeim upp­runa til að fjár­magna sig,“ skrif­aði hann inn á Rauða þráð­inn, umræðu­vett­vang Sós­í­alista á Facebook, snemma í morgun. 

Efni þyrfti að vera merkt flokknum

Máli sínu til stuðn­ings vísar Haukur til laga um starf­semi stjórn­mála­flokka. En hann segir að þau reikni með því að féð renni aðal­lega til kosn­inga­bar­áttu vegna alþingis- og sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga. „Engu að síður má nota féð til að birta efni [eða aug­lýs­ingar] í tengslum við stjórn­mála­bar­áttu – og virð­ist fjár­hags­legur stuðn­ingur flokks­ins við Sam­stöð­ina því vera í takt við lögin.“ 

Þessu fylgi þó það skil­yrði að við birt­ingu efn­is­ins eigi að koma fram að það sé birt á vegum flokks­ins.

„Þannig eiga áhorf­endur rétt á að vita að um póli­tíska tján­ingu ákveð­ins stjórn­mála­flokks sé að ræða – og varðar sektum að gera ekki grein fyrir því. Þannig að ef Sam­stöðin er rekin fyrir fé sem ætlað er til stjórn­mála­starf­semi þarf hún að gera áhorf­endum grein fyrir því að útsend­ingin sé efni frá Sós­í­alista­flokknum. Ég hef ekki orðið var við að hún geri það, miklu heldur seg­ist stöðin vera almennur fjöl­mið­ill sem leitar eftir kostun áskrif­enda/styrkt­ar­að­ila,“ skrifar Haukur. 

„Ef Sam­stöðin er rekin fyrir fé sem ætlað er til stjórn­mála­starf­semi þarf hún að gera áhorf­endum grein fyrir því að útsend­ingin sé efni frá Sós­í­alista­flokknum“
Haukur Arn­þórs­son

Helmingur ríkisframlagsins fer í Samstöðina

Það er Alþýðu­fé­lagið sem heldur utan um eign­ar­hald Sam­stöðv­ar­innar. En Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur fjár­magnað útsend­ingar Sam­stöðv­ar­innar með því að veita rík­is­stuðn­ingi sem flokk­ur­inn fær inn í Alþýðu­fé­lagið. Styrkinn fær flokk­ur­inn á grund­velli fylgis í alþing­is­kosn­ingum og er greiddur úr rík­is­sjóði.

Þar til á síð­asta ári var rík­is­fram­lag­inu skipt í tvennt á milli tveggja félaga – Vor­stjörn­unnar og Alþýðu­fé­lags­ins. En upp­hæð styrks­ins nam 22,6 millj­ónum árið 2025. Ákvörð­unin að ráð­stafa fé flokks­ins með þessum hætti var tekin á aðal­fundi Sós­í­alista­flokks­ins 2021. 

Í kjöl­far aðal­fundar Alþýðu­fé­lags­ins í síð­asta mán­uði ræddi Heim­ildin við Karl Héðinn Krist­jáns­son, for­seta Roða –ung­liða­hreyf­ingar Sós­í­alista­flokks­ins og nýkjör­inn með­lim í fram­kvæmda­stjórn flokks­ins. „Áður greiddi Sós­í­alista­flokk­ur­inn styrk­inn inn í Alþýðu­fé­lagið en núna fer styrk­ur­inn beint inn í Sam­stöð­ina,“ sagði Karl Héðinn og til­tók að þetta fyr­ir­komu­lag hefði verið við lýði frá því í fyrra.

Stefnubreyting hjá Samstöðinni

Tók Karl Héðinn fram að þegar sam­þykkt var árið 2021 að Sós­í­alista­flokk­ur­inn myndi setja fé í Sam­stöð­ina og Alþýðu­fé­lagið hefði það verið gert undir þeim for­merkjum að það þyrfti bráð­nauð­syn­lega fjöl­miðil sem tal­aði út frá sjón­ar­horni og hags­munum alþýð­unnar og verka­fólks. Tónninn hefði þó breyst gríð­ar­lega nýlega.

„Það er svona gengið út frá því að í fyrsta lagi eigi Sam­stöðin alls ekki að vera mál­gagn Sós­í­alista­flokks­ins og eig­in­lega heldur ekki að vera afger­andi skýrt í stuðn­ingi við verka­fólk og hags­muna­bar­áttu þess.“

Karl Héðinn sagði að Gunnar Smári Egilsson, sem er rit­stjóri Sam­stöðv­ar­innar, hefði talað á þessum nótum í dálít­inn tíma. En sjálfum þætti Karli Sós­í­alistar ekki vera að fá það fyrir sinn snúð sem flokk­ur­inn hafi lagt í fjöl­mið­il­inn. 

Gunnar Smári ekki lengur í stjórn flokksins

Um helg­ina urðu gríð­ar­legar svipt­ingar á stjórn Sós­í­alista­flokks­ins þar sem hópur fólks úr gras­rót­inni – þar á meðal Karl Héðinn– bauð sig fram til höf­uðs þeim sem höfðu farið með völd í flokknum síð­ast­liðin ár. Gunnar Smári, stofn­andi flokks­ins og for­maður fram­kvæmda­stjórnar til átta ára, hlaut ekki kjör í fram­kvæmda­stjórn.

Talverð ólga hefur ríkt eftir að þessar nið­ur­stöður voru kunn­gjörðar. Til dæmis sagði Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi og for­seti borg­ar­stjórnar, af sér sem póli­tískur leið­togi flokks­ins og til­kynnti að hún hygð­ist ekki lengur gegna trún­að­ar­störfum í innra starfi flokks­ins. Þá sagði María Lilja Ing­veldar-Þrast­ar­dóttir Kemp, blaða­maður á Sam­stöð­inni, sig úr flokknum. 

Því mun tím­inn leiða í ljós hvað fram­tíð Sam­stöðv­ar­innar ber í skauti sér, en ljóst er að það hefur andað köldu á milli Gunnars Smára og hinnar nýju for­ystu Sós­í­alista­flokks­ins.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár