Bjart Maí­mán­uður hefur verið óvenju­lega góður til úti­vistar og skap­aði kepp­endum í Kópa­vogs­þrí­þraut­inni frá­bærar aðstæður. Þrí­þrautin hófst með 400 metra sundi í Kópa­vogs­laug, því næst tók við 10 kíló­metra hjóla­leið um bæinn og loks 3,6 kíló­metra hlaup. Sigurður Örn Ragn­ars­son sigr­aði í karla­flokki annað árið í röð, en Guðlaug Edda Hann­es­dóttir vann kvenna­flokk­inn og hafn­aði í öðru sæti í heild­ar­keppn­inni. Veð­ur­fræð­ing­ur­inn Trausti Jónasson segir að sum­arið gæti haldið áfram á svip­uðum nótum en ekki sé hægt að treysta á það. Mynd: Golli

„Ákveðin hætta á því að þetta verði bestu dagar sumarsins“

Trausti Jónsson veð­ur­fræð­ingur segir að síð­ast hafi verið við­líka góð­viðri í maí árið 1987. Hann hvetur fólk til að nýta sér veð­ur­blíð­una, en hugs­an­legt sé að nú fari í hönd bestu dagar sum­ars­ins.

Ég ráð­legg fólki að ef það koma svona góðir dagar snemma, eins og núna, að reyna að nota þá. Það er um að gera að grípa gæs­ina meðan hún gefst. Ef það koma svo fleiri góðir dagar í júlí og ágúst þá er það bara bónus.“

Þetta segir veð­ur­fræð­ing­ur­inn Trausti Jónsson í sam­tali við Heim­ild­ina. Blíð­skap­ar­veður hefur verið á land­inu síð­ustu daga og spáð er hlýju og sól­ríku veðri á land­inu öllu um helg­ina. Þegar þetta er ritað er því spáð að hit­inn muni víða ná tutt­ugu gráðum, en hita­met var slegið fyrir maí­mánuð á Egils­stöðum á fimmtu­dag.

Svipað góðviðri í maí 1987

Spurður hvort það sé algengt að svona margir góð­viðr­is­dagar geri vart við sig svona snemma árs svarar Trausti því neit­andi. „Ég man eftir svona einu til­viki þar sem þetta var á þessum tíma. Það var 1987, þá komu svona rosa­lega góðir tíu dagar í maí. En allt sem er svona sex til átta dagar, það er mjög óvenju­legt. Það er ákveðin hætta á því að þetta verði bestu dagar sum­ars­ins,“ segir hann.

Það hafi áður komið fyrir, þótt sjald­gæft sé, að hlýj­ustu dagar árs­ins séu í maí. „Því hærri sem hit­inn er í maí því lík­legra er að það verði hæsti hit­inn,“ segir hann. 

Und­an­farið hefur veðrið verið með því allra hlýjasta á þessum árs­tíma. Hitamet var slegið á Egils­staða­flug­velli klukkan 13.25 á fimmtu­dag, þar sem hit­inn náði 25,8 gráðum. Fyrra met fyrir maí­mánuð var 25,6 gráður og var sett á Vopna­firði árið 1992.

Alltaf spennandi að sjá hvort sumarið komi

Spurður hvort hann sé bjart­sýnn á að sum­arið verði gott í ár segir Trausti að hann hafi áttað sig á því að það verði að taka því sem gef­ist. „Það er eitt af því sem er spenn­andi við íslenskt veð­ur­far – að það er eig­in­lega ekki sumar á hverju ári, eins og er í útlöndum. Það er alltaf spurn­ingin um það hvort við fáum sumar í ár.“

Trausti segir að til dæmis hafi sum­arið í fyrra verið nokkuð dauft, en það hafi átt við um landið nær allt. „Svo í hitti­fyrra þá – á Suð­vest­ur­landi – var seinni hlut­inn bara býsna góður en maí og júní  voru mjög vondir. Það gerði slæmt veður seint í maí þar sem það fór svo mikið af laufi af trjám. Svo við sátum uppi með lauf­lítil tré mest­allt sum­arið. Svo það var mjög skrítið sumar.“

Hann segir að allur gangur hafi verið á vorum síð­ustu ára, en árið í ár hafi verið nokkuð hlýtt hingað til. „Það var nú kalt í jan­úar. En hlýtt alveg síðan. Það sem búið er af árinu – það er með hlýrri árum. En það er nú ekk­ert met samt enn þá.“ Trausti bætir því við að í fyrra og hitteð­fyrra hafi verið nokkuð köld ár miðað við und­an­farin ár. „En ekki miðað við það sem var fyrir 30–40 árum. Það var oft­ast kalt þá.“

Íslendingar kvarti mikið undan veðri

Trausti segir að Íslend­ingar séu heilt yfir mjög dug­legir að kvarta undan veðri. Margir hafi rætt við hann um veðrið í gegnum tíð­ina, því þeir könn­uð­ust við hann úr sjón­varp­inu. „Það var alltaf verið að tala um veðrið við mig. Alveg stöðugt. Fólk var að kvarta undan þessu skíta­sumri, það var fastur liður eins og venju­lega. Svo allt í einu 2003, það var mjög minn­is­stætt, þá var fullt af fólki að tala um hve ynd­is­legt sumar hefði verið. Fólk sem hafði alltaf verið kvart­andi undan veðri í 25 ár.“

Trausti útskýrir að fyrir um 20 til 25 árum hafi nefni­lega hlýnað mikið á Íslandi miðað við það sem áður var. „Alveg risa­stórt stökk. Maður ætl­aði eig­in­lega ekki að trúa því,“ segir hann.

Sumrin í fyrra og hitteð­fyrra hafi því verið nokkuð köld miðað við síð­ustu ár, en ekki miðað við hvernig hit­inn var fyrir 30–40 árum. „Þá var þetta bara venju­legt. Það var oft­ast kalt þá. Við sem erum komin á minn aldur erum svo­lítið á því að við­mið ykkar yngra fólks­ins sé allt annað.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár