Vilja losna við gamla refi úr ríkis stjórnum

Fjár­mála­ráð­herra hefur sett nýjar reglur um hvernig staðið er að vali í stjórnir stórra rík­is­fyr­ir­tækja. Helm­ingur stjórn­ar­for­manna í þessum fyr­ir­tækjum í dag hefur gegnt trún­að­ar­störfum við flokk­ana sem skip­uðu þá.

Vilja losna við gamla refi úr ríkis stjórnum

Nýjum reglum fjár­mála­ráð­herra um skipan val­nefnda til að velja fólk í stjórnir stærstu fyr­ir­tækj­anna í eigu rík­is­ins er meðal ann­ars ætlað að koma í veg fyrir að fólk tengt stjórn­mála­flokkum sé skipað í þessi störf. Regl­urnar gilda þó aðeins um lít­inn hluta fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins, eða tíu af þeim 33 sem listuð eru upp á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Ljóst er þó að fyr­ir­tæki í eigu rík­is­ins eru miklu fleiri en það, því mörg af þessum 33 upp­töldum rík­is­fyr­ir­tækjum eiga dótt­ur­fé­lög, og ná nýjar kröfur um val­nefndir ekki til þeirra heldur. 

Skoðun Heim­ild­ar­innar leiðir í ljós að af þessum tíu fyr­ir­tækjum sem nýju regl­urnar taka til eru stjórnir fimm þeirra undir for­mennsku ein­stak­linga sem hafa verið virkir í starfi stjórn­mála­flokk­anna sem skip­uðu þá. Sumir eru aug­ljós­lega hæfir til að sinna stjórn­ar­störfum sínum, vegna mennt­unar og reynslu, á meðan aðrir hafa ekki jafn­aug­ljósa hæfi­leika sem ráð­herrar kunna að hafa litið til …

Kjósa
77
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Það er vonandi að náist að "skera nokkra refi" og vinna á fjárans strokuspillingunni. En líklega verður árangurinn þunnur því þar á vel við máltækið "get the devil you know."
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár