Engan bilbug að finna á verktökunum

Allt að 500 manns vinna nú að nýjum Land­spít­ala. Fram­kvæmda­stjóri Nýs Land­spít­ala ohf. seg­ist ekki hafa orðið var við þenslu í bygg­ing­ar­geir­anum, þótt ein­hver hörgull sé á iðn­að­ar­mönnum til að sinna fínni verkum, nú þegar minna er orðið um gróf­vinnu eins og hina miklu upp­steypu sem staðið hefur yfir und­an­farin ár.

Engan bilbug að finna á verktökunum
Hring­braut Land­spít­ala­svæðið við Hring­braut hefur breytt um svip á síð­ustu árum. Hér sést nýi með­ferð­ar­kjarn­inn, hjarta nýs þjóð­ar­sjúkra­húss í Vatns­mýri. Mörg stór­hýsi rísa ný á svæð­inu. Mynd: Golli

Árum saman hefur verið unnið að bygg­ingu nýs Land­spít­ala við Hring­braut og verður áfram í all­mörg ár til við­bótar. Gunnar Svav­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Nýs Land­spít­ala ohf. (NLSH), segir við Heim­ild­ina að um þessar mundir sé unnið að sex mis­mun­andi meg­in­þáttum verks­ins á Hring­braut­ar­svæð­inu, en að auki ann­ast NLSH upp­bygg­ingu nýbygg­ingar við Grens­ás­deild og nýbygg­ingar við Sjúkra­húsið á Akureyri.

Það er í mörg horn að líta. Á Hring­braut­ar­svæð­inu er unnið að því að byggja 10 þús­und fer­metra hús fyrir Heil­brigð­is­vís­inda­svið Háskóla Íslands, rann­sókna­hús sem verður 18 þús­und fer­metrar og tutt­ugu þús­und fer­metra bíla­stæða- og tækni­hús. „Svo er verið að vinna í með­ferð­ar­kjarn­anum og uppi á þaki og í bíla­kjall­ar­anum,“ segir Gunnar og nefnir að þá sé ótalið það sem verið er að vinna erlendis, við smíði tækja og bún­aðar inn á nýja spít­al­ann. 

Beðinn um að draga saman mann­afla­þörf­ina í verk­efnum félags­ins segir Gunnar að lík­lega séu um 350 til …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár