„Á ég að gera þetta svona eða hinsegin, hætta við eða breyta?“

Jón Óskar, sá merki list­mál­ari á jafn­framt að baki list­rænan ferli í heimi dag­blaða. Nú hefur hann opnað sýn­ingu á Vinnu­stofu Kjarvals. Hún er opin öllum – í salnum Fantasíu sem er rými fyrir menn­ing­ar­bræð­ing. Ekki er úr vegi að taka púls­inn á Jóni Óskari og rabba um líf og list.

„Á ég að gera þetta svona eða hinsegin, hætta við eða breyta?“
Jón Óskar: „Ég hef alltaf verið hrif­inn af þessu almenna. Því sem skiptir ekki máli. Í þessu flæði sem þú lifir.“ Mynd: Golli

Jón Óskar lífgar upp á grá­mósku­legan dag þegar hann mætir í við­tal í eldapp­el­sínu­gulum jakka og fyrsta spurn­ingin dynur strax á honum: Er rétt að þú hafir skapað Loka á bak­síðu DV?

Hann jánkar því og segir að Loki hafi orðið til í kringum 1977.

„Ég byrj­aði á Vísi árið 76, og hann varð til ári seinna. Svolítið fynd­inn karakter að því leyti að hann var not­aður til að end­ur­spegla fréttir dags­ins, vana­lega á bak­síð­unni. Hinir og þessi blaða­menn skrif­uðu texta við hann. Þannig virk­aði hann eins og algjör geð­sjúk­lingur því sumir blaða­menn­irnir voru með flotta vinkla en aðrir voru bara svo flatir. Eig­in­lega varð hann for­vitni­legri fyrir vikið. Loki var raunar hug­mynd Ólafs Ragn­ars­sonar, síðar bóka­út­gef­anda. Hann var rit­stjóri þarna, þá. Og Loki var teikn­aður á Lang­holts­vegi 44, þar sem ég bjó þá.“

Eitthvað fallegt …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár