Mynd: Mummi Lú

Hátindar ársins – listviðburðir 2024

Listin hefur ólgað árið 2024. Sumarið hófst með Lista­há­tíð í Reykja­vík og allt árið hafa hinir og þessir fjöl­breyttu list­við­burðir kætt land­ann. Menn­ing­ar­blaðið fékk nokkra áhuga­sama um lista­lífið til að nefna hvaða list­við­burðir þeim fannst standa upp úr á árinu.

Silja Aðalsteinsdóttir

ritstjóri, höfundur og þýðandi

Gæti talið margt uppSilja Aðal­steins­dóttir reynir að sjá og heyra sem flest í menn­ing­ar­líf­inu.

Það er illa gert við mann­eskju sem reynir að sjá og heyra sem flest í menn­ing­ar­líf­inu að biðja hana að nefna þrjá við­burði á árinu. Auðvitað er ekki allt jafn­gott en það er svo margt annað en bein list­ræn úrvinnsla sem kemur til álita þegar maður raðar við­burðum upp eftir áhrif­unum sem þeir höfðu á mann.

Ég sá Níu líf tvisvar á árinu, loka­ári þeirrar gagn­merku sýn­ingar, og bíó­mynd­ina Snert­ingu sá ég líka tvisvar, þetta segir sitt. Ég sá þrjár óperu­sýn­ingar sviðs­lista­hóps­ins Óðs á árinu og gæti valið þær allar! Hall­grímur Helgason hefur á árinu gefið út stóra og mik­il­væga skáld­sögu, sýnt áhrifa­mikið yfir­lit mynd­verka sinna á Kjar­vals­stöðum og verið með leik­hús­uppi­stand úr sagna­bálk­inum um …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár